Stormurinn á Suðaustur- og Austurlandi gengur smám saman niður Atli Ísleifsson skrifar 1. mars 2022 07:22 Spáð er allhvassri suðaustanátt á morgun, en hvassviðri eða stormi suðvestantil. Vísir/RAX Alldjúp lægð norðaustur af landinu fjarlægist í dag og mun vestan hvassviðrið og stormurinn á Suðaustur- og Austurlandi því ganga smám saman niður.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði hægari vindur og él í öðrum landshlutum, en úrkomulítið síðdegis. Hiti um eða undir frostmarki. Gular viðvaranir eru í gildi á Suðausturlandi til klukkan 11 í dag og á Austfjörðum til hádegis. „Í kvöld rofar til og kólnar, jafnframt snýst hann í vaxandi austanátt suðvestan- og vestanlands enda ný lægð að nálgast úr suðvestri. Allhvöss suðaustanátt á morgun, en hvassviðri eða stormur suðvestantil. Yfirleitt þurrt á Norðurlandi, annars rigning eða slydda. Það hlýnar aftur og hiti kemst víða í 3 til 6 stig. Hægari og slydduél annað kvöld, en rigning suðaustan- og austanlands.“ Spákortið fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Suðaustan 13-23 m/s, hvassast SV-lands. Rigning eða slydda, en úrkomulítið á N-landi. Hlýnandi, hiti 1 til 6 stig eftir hádegi. Hægari um kvöldið og slydduél um landið V-vert, en rigning SA-lands og á Austfjörðum. Á fimmtudag: Suðlæg átt 5-10 og stöku él, en rigning eða slydda A-til fram eftir degi. Hiti 0 til 5 stig, en kólnar um kvöldið. Á föstudag: Suðvestan og vestan 8-15 og él, en þurrt og bjart A-lands. Hiti í kringum frostmark. Á laugardag: Suðlæg átt og úrkomulítið, en rigning eða slydda S- og V-lands seinni partinn og hlýnar heldur. Á sunnudag: Suðlæg átt og rigning eða snjókoma, en þurrt NA-lands.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira