Kröpp lægð veldur hvassviðri með snjó í nótt og á morgun Atli Ísleifsson skrifar 16. mars 2022 07:35 Í nótt og fyrramálið gengur kröpp lægð til norðurs fyrir vestan land og veldur hún suðaustan hvassviðri eða stormi um tíma í flestum landshlutum með snjókomu eða slyddu. Vísir/Vilhelm Lægðin sem stjórnaði veðrinu í gær er enn á Grænlandshafi en hún hefur grynnst töluvert. Veðrið verður því áfram svipað en vindurinn þó öllu minni, suðvestan átta til fimmtán metrar á sekúndu og éljagangur, en yfirleitt þurrt um landið norðaustanvert.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að frost verði á bilinu núll til fimm stig í dag. Í nótt og fyrramálið gengur svo kröpp lægð til norðurs fyrir vestan land og veldur hún suðaustan hvassviðri eða stormi um tíma í flestum landshlutum með snjókomu eða slyddu. „Á morgun snýst svo í allhvassa eða hvassa suðvestanátt með talsverðum éljagangi, en það styttir smám saman upp norðaustantil á landinu. Í nótt og á morgun geta því víða skapast varasamar aðstæður til ferðalaga,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákortið fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Suðaustan hvassviðri eða stormur um morguninn og snjókoma um tíma í flestum landshlutum. Snýst síðan í suðvestan 13-20 m/s með éljum, en styttir upp NA-til. Frost 0 til 4 stig. Á föstudag: Minnkandi suðvestanátt og él, en þurrt NA-til á landinu. Hiti um og undir frostmarki. Snjókoma eða slydda á S- og A-landi undir kvöld. Á laugardag: Suðvestan og vestan 5-13 og dálítil él. Snjókoma eða rigning á A-verðu landinu um morguninn, en birtir síðan til þar. Hiti áfram svipaður, en hlýnar við SA-ströndina. Á sunnudag: Hægur vindur um morguninn, bjart að mestu og vægt frost. Suðaustan 5-13 seinnipartinn og hlýnar með dálítilli rigningu eða slyddu, en þurrt að kalla NA-lands. Á mánudag og þriðjudag: Suðaustanátt og súld eða dálítil rigning, en þurrt á N- og A-landi. Hiti 3 til 9 stig.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira