Meðferðir Even Labs bættu lífsgæðin Even Labs 18. mars 2022 12:16 Katrín Bjarkadóttir hefur nýtt sér meðferðir Even Labs við gigtarverkjum með góðum árangri. Even Labs í Faxafeni 14. býður upp á fjölbreyttar meðferðir sem bæta lífsgæði og líðan. Rauðljósameðferð, Sweat Spa, kuldameðferð, hljóðbylgjunudd og þrýstinudd. Meðferðirnar vinna á bólgum og verkjum og hafa meðal annars gagnast þeim sem glíma við gigt. „Ég er mjög slæm af vefjagigt og lifi við sársauka á hverjum degi. Ég hafði heyrt að rauðljósameðferðir hjálpuðu gigtarsjúklingum og lesið rannsóknir og greinar um áhrif slíkra meðferða á verki. Ég varð því mjög spennt þegar ég frétti af Even Labs og þeirra meðferðum en ég hafði ekki séð þær í boði annarsstaðar hérlendis. Ég mætti því bara á staðinn og sagði þeim stöðuna á mínum málum og fékk frábæra ráðgjöf og persónulega þjónustu,“ segir Katrín Bjarkadóttir en hún hefur nýtt sér fjölbreyttar meðferðir hjá Even Labs með góðum árangri. Rauðljósameðferð hefur jákvæð áhrif á húðina og hitar og mýkir vöðva. „Ég mætti í rauðljósameðferðina á hverjum degi en meðferðin sjálf tekur ekki nema 15 mínútur. Eftir fimm skipti tók ég eftir að exem sem ég er með í andlitinu lagaðist svo ég gat hætt að nota krem sem ég hef þurft að nota til að halda því niðri. Eftir nokkur skipti í viðbót fann ég einnig mikinn mun á gigtarverkjunum. Ég ákvað að prófa fleiri meðferðir og bætti við Sweat spa en gigtarsjúklingar eru mjög oft stirðir og kuldi fer afar illa í mann. Í Sweat spa liggur maður í hita í 40 mínútur og vöðvarnir verða mjúkir inn að beini,“ útskýrir Katrín. Í Sweat Spa er viðkomandi vafinn í plast og infrarautt teppi sem hitnar upp í 75 til 85 gráður. „Ég var einnig oft það aum í líkamanum vegna vefjagigtarinnar að ég þoldi illa að fara í nudd en hjá Even Labs gat ég prófað Normatec meðferðina, sem er sogæðanudd með þrýstingi. Það hentaði mér mjög vel því sogæðanuddið þrýstir á allt svæðið í einu í smá stund og sleppir svo. Þetta er áreynslulaust nudd ef svo má segja. Með því að stunda þessar þrjár meðferðir finn ég ótrúlega mikinn mun og líður miklu betur í líkamanum. Ég stunda þær eftir þörfum og finn mun ef það líður of langt á milli. Ég mæli hiklaust með Even Labs.“ Meðferðir Even Labs Rauðljósameðferð með tvennskonar bylgjulengdum: 660 nm og 850 nm. 660 nm ljósið hefur jákvæð áhrif á húðina og hefur meðal annars gagnast við exemi í húð, psoriasis og rósroða. Meðferðin flýtir einnig fyrir því að húð grói. Ljósið ýtir undir náttúrulega myndun kollagens í húðinni og minnkar fínar línur. 850nm ljósið fer dýpra inn í vefina, hitar þá og mýkir og eykur blóðflæði og minnkar bólgur. Sweat Spa: Viðkomandi er vafinn í plast og infrarautt teppi sem hitnar upp í 75 til 85 gráður. Líkaminn svitnar mjög mikið við þessa meðferð og er mikilvægt að drekka vatn meðan á meðferð stendur. Kuldameðferð: Kalt loft er látið flæða um andlit. Meðferðin minnkar bólgur og eykur kollagenframleiðslu, minnkar bólur og snýr við skallamyndun. Hljóðbylgjunudd: Hjálpar líkamanum að slaka á og styður við endurheimt. Hljóðbylgjunudd hefur góð áhrif á svefn og minnkar stresshormón í líkamanum. Virkjar blóðrás og sogæðakerfið og róar taugakerfið. Þrýstinudd: Minnkar bjúg og bólgur og flýtir endurheimt og minnkar verki í vöðvum. Eykur liðleika og losar líkamann við mjólkursýrur, minnkar líkur á æðahnútum og hefur góð áhrif á blóðrásina og sogæðakerfið. Opnunartími Even Labs er 9-18 virka daga og 11-14 á laugardögum. Það er hægt að bóka tíma á heimasíðunni evenlabs.is. Heilsa Mest lesið Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Tónlist Hvert er mest óþolandi orð íslenskunnar? Menning Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Heigulsleg ákvörðun Rúv, hörundsárir listamenn og versta bók flóðsins Menning Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Lífið Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Sigurður Sævar fyllti Landsbankahúsið Menning Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Lífið Fleiri fréttir Hröð og skemmtileg rússíbanareið EKOhúsið sér um umhverfisvænu jólagjafirnar Ekkert betra en sú þerapía að rifja sitt eigið líf upp Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Glóandi hættulestur Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Fólk hafði af því miklar áhyggjur að ég ætlaði að „pipra“ Fallegu jólagjafirnar fást í Maí Alvöru ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Gefðu töfrandi skemmtun í jólagjöf Epli með nýja stórglæsilega verslun Konfektleikur í tilefni 90 ára afmælis Nóa Síríus Samsæri á Paradísareyjunni Bjóða upp á jólakaffi allar helgar fram að jólum Fröken Dúlla og konurnar sem báru skömmina 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Snörp og áhrifamikil bók Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Vestfirsk náttúra skapar dulúð í nýjustu bók Margrétar S. Höskuldsdóttur Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Útreiðartúrinn leiðir lesendur inn í flókið net fjölskyldu, vináttu og leyndarmála Himnesk rúmföt úr egypskri bómull Nóvella sem leiðir lesandann inn í söguna á nýjan hátt Uppselt á stórtónleika Bubba – aukatónleikar fara í sölu á morgun Þegar vitvél fær spurningu um nasisma og allt fer í háaloft The Barricade Boys koma til Íslands með Broadway Party Nýtt lúxushótel við svarta strönd býður upp á kyrrð og fegurð Breyta bíóinu í risastórt skemmtisvæði í tilefni afmælis „Nýju hverfin eintómar stafsetningarvillur“ Sjá meira
„
Opnunartími Even Labs er 9-18 virka daga og 11-14 á laugardögum. Það er hægt að bóka tíma á heimasíðunni evenlabs.is.
Heilsa Mest lesið Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Tónlist Hvert er mest óþolandi orð íslenskunnar? Menning Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Heigulsleg ákvörðun Rúv, hörundsárir listamenn og versta bók flóðsins Menning Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Lífið Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Sigurður Sævar fyllti Landsbankahúsið Menning Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Lífið Fleiri fréttir Hröð og skemmtileg rússíbanareið EKOhúsið sér um umhverfisvænu jólagjafirnar Ekkert betra en sú þerapía að rifja sitt eigið líf upp Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Glóandi hættulestur Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Fólk hafði af því miklar áhyggjur að ég ætlaði að „pipra“ Fallegu jólagjafirnar fást í Maí Alvöru ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Gefðu töfrandi skemmtun í jólagjöf Epli með nýja stórglæsilega verslun Konfektleikur í tilefni 90 ára afmælis Nóa Síríus Samsæri á Paradísareyjunni Bjóða upp á jólakaffi allar helgar fram að jólum Fröken Dúlla og konurnar sem báru skömmina 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Snörp og áhrifamikil bók Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Vestfirsk náttúra skapar dulúð í nýjustu bók Margrétar S. Höskuldsdóttur Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Útreiðartúrinn leiðir lesendur inn í flókið net fjölskyldu, vináttu og leyndarmála Himnesk rúmföt úr egypskri bómull Nóvella sem leiðir lesandann inn í söguna á nýjan hátt Uppselt á stórtónleika Bubba – aukatónleikar fara í sölu á morgun Þegar vitvél fær spurningu um nasisma og allt fer í háaloft The Barricade Boys koma til Íslands með Broadway Party Nýtt lúxushótel við svarta strönd býður upp á kyrrð og fegurð Breyta bíóinu í risastórt skemmtisvæði í tilefni afmælis „Nýju hverfin eintómar stafsetningarvillur“ Sjá meira