Íslenski skálinn á Feneyjatvíæringnum opnaður: „Þetta var extra langt ferðalag“ Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar 21. apríl 2022 23:52 Verk Sigurðar ber titilinn Perpetual Motion eða Ævarandi hreyfing, og sýnir svífandi járnryk stækkað upp margfalt með myndavélarlinsu. Vísir/Hjalti Foropnun íslenska skálans á myndlistarhátíðinni Feneyjatvíæringnum fór fram við hátíðlega athöfn í Feneyjum í dag. Sigurður Guðjónsson sýnir að þessu sinni fyrir hönd Íslands á tvíæringnum.
Feneyjartvíæringurinn átti upprunalega að fara fram í fyrra en var frestað um ár og hefur það því lengt ferlið í kringum verkið að sögn Sigurðar. „Þetta var extra langt ferðalag þannig þú ferð í alls konar dældir og holur, upp og niður, en ég myndi segja frá því síðasta sumar, þegar ég loksins komst hingað, þá gat ég tekið svona lokaákvörðun um hvert verkið færi,“ segir Sigurður. Sigurður Guðjónsson myndlistarmaður. Verk Sigurðar ber titilinn Perpetual Motion eða Ævarandi hreyfing, og sýnir svífandi járnryk stækkað upp margfalt með myndavélarlinsu. Hughrifin sem því fylgja eru allt önnur en að horft sé á málmryk á hreyfingu. Sigurður vinnur mikið með slíka óséða örheima í list sinni, sem eru til allt í kringum okkur en birtast okkur afar sjaldan. „Þetta er risastór fjölskynjunarskúlptúr, ég er að tala um verkið út frá því sjónarhorni, og það sem þú ert að sjá þarna á skjánum er ryk sem er búið að kastast í kringum segul sem er tengdur við mótor sem býr í rauninni til svona gangráðinn í gegnum allt sýningarrýmið,“ segir Sigurður. Aðspurður um hvað heillar hann við breyta einhverju svo agnarsmáu í eitthvað svo risavaxið segir listamaðurinn skalann alltaf hafa verið eitthvað sem hann hefur heillast mikið af. „Að getað farið inn í þennan, í þessu tilfelli mjög abstrakt óhljóðakenndan efnisheim, og svo þanið hann upp í sýningarrýmið. Þetta hefur líka að gera með tengsl hljóðs og myndar, ég nota þennan míkróheim sem inspirasjón fyrir hljóðheiminn sem er í verkinu.“ Búist við miklum fjölda gesta Lilja Alfreðsdóttir ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra flutti meðal annarra ræðu á athöfninni og opnaði í enda tölu sinnar sýningu Sigurðar. Hún minntist sérstaklega á hvað henni þætti mikið til Sigurðar koma, ekki bara í listinni heldur líka á handboltavellinum, þá sérstaklega af því að hann hafi leikið með Fram. Í samtali við fréttastofu segir Lilja stórkostlegt að vera komin út til Feneyja og að geta samfagnað með listamanninum. Henni þyki sýningin einstaklega flott og segir mikinn heiður fyrir Íslendinga að vera komna inn á þetta svæði tvíæringsins. Hún segir þátttöku Íslands í hátíðinni hafa gríðarlega þýðingu því það kynni íslenska myndlist á heimsvísu. „Við ætlum okkur stóra hluti í myndlistinni, við höfum sterka og ríka myndlistarhefð á Íslandi og eitt af því sem við erum að fara að kynna í næsta mánuði er myndlistarstefna til ársins 2030 sem við höfum verið að undirbúa síðustu tvö árin.“ Sýningin verður opin í sjö mánuði.vísir/hjalti Sigurður á yfir tuttugu einkasýningar að baki víðs vegar um heiminn. Hann hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin árið 2018 fyrir verk sitt Innljós. Almenna opnun tvíæringsins er á laugardaginn en foropnun stendur yfir fyrir útvalda frá miðvikudegi til föstudags. Opnanir eru í skálum fjölda þjóða á um það bil korters fresti yfir daginn, svo af nógu er að taka. Sýningin er svo opin í sjö mánuði og búist er við miklum fjölda gesta, en hátíðin árið 2019 dró að sér um 600.000 gesti. Íslenski skálinn er í Arsenale í ár, einu af aðalsvæðum hátíðarinnar, en hann hefur flakkað töluvert um Feneyjar í síðustu skipti sem tvíæringurinn hefur verið haldinn. Giardini della Biannale heitir svo stærsta svæðið þar sem má finna fjölda varanlegra skála þjóða. Í Arsenale er að finna stóra samsýningu sem stýrt er af sýningarstjóra. Samsýningin í ár heitir The Milk of Dreams og er sýningarstýrt af Ceciliu Alemani. Þar til hliðar eru svo sýningarskálar fjölmargra þjóða, þar á meðal Íslands.
Myndlist Ítalía Íslendingar erlendis Menning Feneyjatvíæringurinn Tengdar fréttir Tryggja fjármagn til að færa íslenska skálann á aðalsvæði Feneyjartvíæringsins Ákveðið hefur verið að færa sýningarsvæði Íslands á Feneyjartvíæringnum 2022 á aðalsvæði hátíðarinnar og hefur mennta- og menningarmálaráðuneyti tryggt fjármagn til þess. 4. nóvember 2020 12:06 Mest lesið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Unnur Borg og Gugga saman í paradís Lífið Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Lífið Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira
Tryggja fjármagn til að færa íslenska skálann á aðalsvæði Feneyjartvíæringsins Ákveðið hefur verið að færa sýningarsvæði Íslands á Feneyjartvíæringnum 2022 á aðalsvæði hátíðarinnar og hefur mennta- og menningarmálaráðuneyti tryggt fjármagn til þess. 4. nóvember 2020 12:06