Oddvitaáskorunin: Hlustar mikið á ungar tónlistarkonur Samúel Karl Ólason skrifar 8. maí 2022 09:00 Plokk í Mosfellsbæ. Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2022 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum.
Anna Sigríður Guðnadóttir leiðir lista Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. Anna Sigríður er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ og hefur setið í bæjarstjórn frá árinu 2014. „Mín hjartans mál í pólitíkinni eru gróskumikið skólastarf, bættur aðbúnaður skólanna og barnanna og stórefld stoðþjónusta inn í skólana okkar. Ég vil skipulag fyrir fólk ekki verktaka. Ég vil að mannréttindi allra séu virt í samfélagi sem skilur engan eftir, samfélagi með góða samvisku. Ég vil að umhverfis- og loftslagsmál séu fléttuð inn í allar ákvarðanir sem teknar eru á sveitarstjórnarstigi og að við mótum framtíðarstefnu um umhverfisvæna atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu. Samfylkingin er flokkur jafnaðarmanna og byggir allt sitt starf á grunngildum jafnaðarstefnunnar. Við viljum að Mosfellsbær sé góður staður til að búa á frá æsku til elliára, að búsetukostir séu fjölbreyttir og að bærinn uppfylli þarfir fólks fyrir þjónustu á öllum skeiðum lífsins. Við viljum fjölbreytt samfélag þar sem er pláss fyrir okkur öll og við styðjum hvert annað. Við viljum ábyrgt samfélag sem stendur vörð um almannahagsmuni og nýtir tækifærin með sjálfbærni og hagsmuni framtíðarkynslóða í huga. Ég er stjórnsýslufræðingur og upplýsingafræðingur að mennt og starfa hjá Landspítalanum. Ég er gift Gylfa Dýrmundssyni, fyrrv. rannsóknarlögreglumanni við eigum 4 börn og 4 barnabörn og við höfum búið í Mosfellsbæ í 22 ár.“ Klippa: Oddvitaáskorun - Anna Sigríður Guðnadóttir Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi? Þar sem ég er stödd á björtum sumardegi , gróðurangan í loftinu og kyrrðin áþreifanleg. Er eitthvað lítilvægt sem fer þó í taugarnar á þér í þínu sveitarfélagi sem þú vilt að sé lagað? Já það vantar fleiri ruslafötur, einfalt úrlausnarefni! Hvert er þitt uppáhalds áhugamál sem gæti þótt skrítið? Sumum finnst sérkennilegt að fólk hafi áhuga á pólitík. Hver eru þín minnistæðustu samskipti við lögregluna? Hef haft mikil og langavarandi samskipti við lögregluna, enda gift einum slíkum. Hvað færðu þér á pizzu? Gráðaost, rauðlauk, döðlur, sveppi og klettasalat Hvaða lag peppar þig mest? Fer alveg eftir stemmningunni hverju sinni. Gæti verið All day and all of the night með Kinks, Every breath you take með Police, God save the queen með Sex Pistols, Dancing Queen með Abba og svo auðvitað Evrópusöngurinn Óðurinn til gleðinnar. Hvað getur þú tekið margar armbeygjur? Með eða án glass í hendi? Göngutúr eða skokk? Göngutúr. Uppáhalds brandari? Man bara aldrei neina brandara, því miður. Hvað er þitt draumafríi? Ferð í Serengeti þjóðgarðinn í Tanzaníu. Hvort fannst þér 2020 eða 2021 vera verra ár? Bæði verri. Uppáhalds tónlistarmaður? Smekkur minn á tónlist er svo fjölbreyttur og fer svo mikið eftir stemmningunni að ég get ekki tekið einn út. Þessa dagana hef ég gaman af að hlusta á ungar íslenskar tónlistarkonur eins og GDRN, Bríeti, og Laufey Lín svo einhverjar séu nefndar. Hvað er það skrýtnasta sem þú manst eftir að hafa gert? Lífið sjálft er skrýtið og skemmtilegt. Ef það væri gerð kvikmynd um ævi þína, hver ætti að leika þig? Má vera íslenskur eða útlenskur. Steinunn Ólina Þorsteinsdóttir Hefur þú verið í verbúð? Já eitt sumar. Áhrifamesta kvikmyndin? Schindler‘s Llist. Áttu eftir að sakna Nágranna? Er einhver af nágrönnum mínum að flytja? Ef þú yrðir að flytja úr þínu sveitarfélagi, hvert myndir þú helst vilja fara? Ég væri til í að prófa að búa á Ísafirði. Uppáhalds „guilty pleasure“ lag? (skammast þín smá fyrir að hafa gaman af því – sakbitin sæla) Power of Love, Celine Dion.
Oddvitaáskorunin Sveitarstjórnarkosningar 2022 Mosfellsbær Samfylkingin Mest lesið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Lífið Fleiri fréttir Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster Sjá meira