Ísland komst áfram í úrslitin á fyrra undanúrslitakvöldinu á þriðjudag og Systur stíga á svið í seinni helming keppninnar á laugardag.
En við skulum fara yfir þau atriði sem flutt verða á sviðinu í kvöld. Þau eru hér í þeirri röð sem þau stíga á sviðið.
The Rasmus - Jezebel
Framlag Finnlands til keppninnar í ár. Spár veðbankanna segja að Finnland komist áfram í úrslitin.
Michael Ben David - I.M
Framlag Ísrael til keppninnar í ár. Talið er ólíklegt að Ísrael komist í úrslitin en það er í fjórtánda sæti af átján í veðbönkum.
Konsetrakta - In Corpore Sano
Framlag Serbíu til keppninnar þetta árið. Serbíu er spáð framgöngu í úrslitin og góðu gengi í keppninni.
Nadir Rustamli - Fade To Black
Framlag Aserbaídsjan til keppninnar. Aserbaídjsan er talið munu komast áfram en er í baráttusætinu og gæti auðveldlega misst sætið.
Circus Mircus - Lock Me In
Framlag Georgíu til keppninnar í ár. Ólíklegt er að Georgía komist áfram í undanúrslit samkvæmt veðbönkum eða aðeins 20 prósent líkur.
Emma Muscat - I Am What I Am
Framlag Möltu til keppninnar þetta árið. Malta gæti komist áfram í úrslitin og er í baráttu við Aserbaídsjan um tíunda plássið.
Achille Lauro - Stripper
San Marínó er talið ólíklegt til að komast áfram í úrslitin með sína strippara. Það gæti þó gerst, en landið er í tólfta sæti í riðlinum af átján samkvæmt veðbönkum.
Sheldon Riley - Not the Same
Áströlum er spáð ágætu gengi í keppninni og nær öruggt að þeir komist áfram í úrslitin.
Andromache - Ela
Kýpur gæti vel komist í úrslitin en er samt í einu baráttusætanna, áttunda sæti. Samkvæmt veðbönkum eru 58 prósent líkur á að Kýpur komist í úrslitin.
Brooke Scullion - That's Rich
Írland mun líklega ekki komast í úrslitin þetta árið. 22 prósent líkur á því samkvæmt veðbönkum.
Andrea - Circles
Norður-Makedónía er talið ólíklegast þessara landa til að komast í úrslitin, með þrettán prósent líkur í veðbönkum.
Stefan - Hope
Eistland er eitt þeirra landa sem er nær öruggt að komist áfram að mati veðbanka, 84 prósent líkur eru ekki slæmar.
WRS - Llámame
Rúmenía mun nær örugglega ekki komast áfram. Þrettánda sæti í veðbönkum með 35 prósent líkur á framgöngu. Gleymum þó ekki að taldar voru 37 prósent líkur á að Systur kæmust áfram fyrir Íslands hönd og þær munu stíga á svið á laugardag.
Ochman - River
Pólverjar munu örugglega komast áfram. Rétt á eftir Svíum í veðbönkum með 93 prósent líkur á að komast í úrslitin.
Vladana - Breathe
Svartfjallaland mun alveg örugglega ekki komast áfram. Fjórtán prósent líkur á því og það er í sautjánda sæti í veðbönkum.
Jérémie Makiese - Miss You
Belgar eru meðal þeirra sem eru í hættu á að komast áfram. Í áttunda sæti á lista veðbanka og framgangslíkur þeirra á við Kýpur og Aserbaídsjan.
Cornelia Jakobs - Hold Me Closer
Svíar, eins og vanalega, eru mjög sigurstranglegir. Líklegastir til að komast upp úr riðlinum í veðbönkum og spáð fjórða sæti í keppninni.
We Are Domi - Lights Off
Framlag Tékklands þetta árið og nær öruggt að það komist áfram. Með 75 prósent framgangslíkur samkvæmt veðbönkum og í sjötta sæti. Ekki slæmt.