Fréttastofa áhugamanna um pólitík, FÁUP, er skipuð fimm strákum í 8. bekk í Háteigsskóla. Frá því í sveitastjórnarkosningunum 2018 hafa piltarnir haldið úti metnaðarfullri umfjöllun um kosningar á Íslandi; margra þátta seríur eftir þá eru aðgengilegar á Youtube.
Og þeir hafa ekki veigrað sér við því að vaða í þungu málin; „Hvernig lítur þú aftur á hitting þinn á Klaustursbar fyrir um tveimur árum?“ spurði einn liðsmanna Karl Gauta Hjaltason í viðtali fyrir alþingiskosningarnar í haust.
Fréttastofa náði tali af þremur FÁUP-mönnum þar sem þeir voru nýkomnir úr skólasundi. Þar fóru piltarnir, Arnmundur Sighvatsson, Matthías Atlason og Úlfur Marínósson, yfir það hvað heillaði þá við pólitík, málefnin sem brenna á þeim fyrir kosningarnar nú og framtíðarfyrirætlanir fréttastofunnar.
Viðtalið við strákana má horfa á í spilaranum hér fyrir ofan.