Hlýr suðlægur loftmassi á leið yfir landið Eiður Þór Árnason skrifar 25. maí 2022 08:26 Sumarið færist nær. Vísir/Vilhelm Í dag er spáð breytilegri átt þremur til átta metrum á sekúndu og rigningu eða skúrum í flestum landshlutum. Hiti fimm til tíu stig.
Norðan fimm til tíu metrar á sekúndu á morgun og súld eða rigning norðan- og austanlands, en skýjað með köflum og líkur á stöku síðdegisskúrum sunnantil á landinu. Hiti fimm til fjórtán stig, hlýjast sunnanlands. Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofunni að í dag færist miðja grunnrar lægðar yfir landið með tilheyrandi regnsvæði og verður því víða vætusamt. Þó verður líklega lítil úrkoma á norðvestanverðu landinu. Á morgun rofar til sunnan heiða og verður bjart með köflum þegar kemur fram á daginn, en þó má búast við síðdegisskúrum á stöku stað. Hlýnar þar sem sólin nær að skína, upp í um þrettán til fjórtán stig þegar best lætur sunnanlands. Að sögn veðurfræðings gera spár síðan ráð fyrir að um helgina færist hlýr loftmassi af suðlægum uppruna yfir landið. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s, skýjað og þurrt að mestu á norðanverðu landinu með hita 3 til 7 stig. Bjart með köflum sunnanlands, en dálitlir skúrir síðdegis og hiti 8 til 13 stig.Á laugardag: Suðaustan 8-13 m/s og lítilsháttar væta sunnan- og vestanlands. Hægari vindur og bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast fyrir norðan.Á sunnudag: Hæg suðlæg eða breytileg átt og skýjað vestanlands, en annars yfirleitt léttskýjað. Hiti víða 12 til 18 stig.Á mánudag: Hæg vestlæg eða breytileg átt og skýjað, en þurrt að mestu. Hiti 11 til 19 stig, hlýjast inn til landsins.Á þriðjudag: Hægir norðvestanvindar og víða dálítil væta, en þurrt suðaustanlands. Kólnandi veður.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira