Saga Sig leikstýrði myndbandinu og Stella Rósenkranz pródúseraði. Lagið er flutt af Klöru og samið af henni og Ölmu Guðmundsdóttur. James Gladius Wong sá um upptökustjórn. Myndbandinu er lýst sem nostalgíu gleði og segir Klara ferlið hafa verið virkilega skemmtilegt.
„Þetta var eiginlega bara smá ævintýri - að fara saman til Eyja og skjóta myndbandið og það var svo vel tekið á móti okkur alls staðar. Við vorum með troðfullan bíl af fötum og glimmeri og stelpurnar hlógu allan daginn af mér því ég vildi ekki láta gera neitt við hárið á mér nema það væri einhverskonar ný útfærsla á fléttu. Enda elska ég allar þessar fléttu greiðslur sem Hildur Ösp Gunnarsdóttir hárgreiðslu stjarnan mín gerði,“ segir Klara.