Hér má sjá myndbandið:
Blaðamaður tók púlsinn á Klöru og fékk að heyra frá gerð myndbandsins.
Hvaðan fékkstu innblástur fyrir myndbandinu?
Mig langaði að finna leið til að leyfa gömlum og nýjum tímum að mætast.
Það eru liðin tvö ár síðan við fengum að halda Þjóðhátíð og það verður stórkostlegt að koma saman aftur.
Ég fann gamlar filmur frá hátíðarhöldum í Vestmannaeyjum um miðja síðustu öld sem mér fannst dásamlegt að leyfa að vera með og vera í smá aðalhlutverki. Láta nútímann og myndir úr sögu Eyja mætast. Svo er svo ótrúlegt að vinna svona verkefni með hæfileika konu eins og Sögu Sig sem las eiginlega hugsanir mínar algjörlega og gerði myndbandið að sínu á sinn einstaka hátt. Okkur hefur langað að vinna saman lengi og það var heiður að fá hana með mér í þetta.

Hvað fannst þér mikilvægast að kæmist til skila?
Mig langaði að skapa fallegt og öðruvísi myndefni með laginu sem sýnir hvað Vestmannaeyjar eru fallegar og eiga mikla sögu. Þó að Þjóðhátíð sé risapartý og eitt það besta á árinu þá er það líka fjölskylduhátíð og Vestmanneyingar alast upp við undirbúning og þátttöku í þessum hátíðarhöldum. Við vildum sýna frá náttúrufegurð Vestmannaeyja og sýna staði sem kannski ekki allir vita um. Eyjabíó tók svo vel á móti okkur og gaf okkur fullkominn stað til að varpa gömlum myndum úr Eyjum.

Svo er ég þakklát mikilvægu starfi sem fer fram á vegum góðgerðasamtaka fyrir velferð sjávardýra, Sea Life Trust, í Sædýrasafni Vestmannaeyja. Þar er einskonar endurhæfingarstöð fyrir pysjur sem í þúsunda tali villast á ári hverju inn í bæinn, hafa slasast eða fest í olíu og þurfa hjálp við að komast til baka í náttúruna.
Þar er einnig griðastaður fyrir tvær gullfallegar mjöldrur (e. Beluga whale) í endurhæfingu, þær Litlu Hvít og Litlu Grá, sem að mínu mati eru stjörnur myndbandsins.
Þeim var bjargað úr ömurlegum aðstæðum í dýragarði í Shanghai og eru nú í endurhæfingu þar sem vonast er til að geta undirbúið þær fyrir lífi á sínu rétta heimili í sjónum.
Hvernig gekk ferlið?
Þetta var eiginlega bara smá ævintýri - fara saman til Eyja og skjóta myndbandið og það var svo vel tekið á móti okkur alls staðar. Við vorum með troðfullan bíl af fötum og glimmeri og stelpurnar hlógu allan daginn af mér því ég vildi ekki láta gera neitt við hárið á mér nema það væri einhverskonar ný útfærsla á fléttu. Enda elska ég allar þessar fléttu greiðslur sem Hildur Ösp Gunnarsdóttir hárgreiðslu stjarnan mín gerði!

Hvernig ertu stemmd fyrir sumrinu og fyrir stóru stundinni á Þjóðhátíð?
Ég spennt fyrir sumrinu og hlakka mikið til Þjóðhátíðar. Ég söng í Brekkusöngnum í sjónvarpssendingu í fyrra og þá var dalurinn tómur svo það verður dásamlegt að syngja fyrir fullan dal í ár.
Ég vil að lokum taka fram hvað ég er þakklát Ölgerðinni og Þjóðhátíðarnefnd fyrir traustið. Það eru algjörir snillingar sem sjá um markaðsmálin hjá þeim.
Að treysta okkur listakonunum til að leysa þetta verkefni og vera til í að gera eitthvað nýtt og öðruvísi með okkur.
Stella Rósenkranz, samstarfskona mín til margra ára, gerði þetta svo allt mögulegt í hlutverki pródúsers. Hún hefur framleitt fyrir fjölda verkefna innan tónlistarbransans og auglýsingageirans og svona verkefni gengi ekki ef það væri ekki fagmenneskja að pródúsera.