Veður

Norð­læg átt og úr­koma á víð á dreif

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti á landinu verður á bilinu tíu til tuttugu stig, hlýjast á Suðausturlandi.
Hiti á landinu verður á bilinu tíu til tuttugu stig, hlýjast á Suðausturlandi. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan spáir norðlægri átt, þremur til átta metrum á sekúndu, og skýjað að mestu með dálítilli úrkomu á víð og dreif.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að seinnipartinn hvessi aðeins við suðausturströndina og létti einnig til um norðanvert landið. Hiti verður á bilinu tíu til tuttugu stig, hlýjast á Suðausturlandi.

„Snýst aftur í suðvestlæga átt á morgun, 5-13 m/s og þá hvassast vestanlands. Þykknar upp og fer að rigna, fyrst vestantil en síðar um daginn, undir kvöld, norðaustan- og austanlands,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákortið fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag (sumarsólstöður): Suðvestlæg átt 5-13 m/s, hvassast vestanlands. Þykknar upp og fer að rigna, fyrst vestanlands en þurrt að kalla norðaustantil fram undir kvöld. Hiti 8 til 15 stig.

Á miðvikudag: Snýst í norðlæga átt 5-13 og lítilsháttar rigning í flestum landshlutum. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast sunnantil.

Á fimmtudag: Norðlæg átt eða breytileg átt 3-8 m/s, skýjað og lítilshattar væta, einkum sunnanlands. Léttir víða til seinnipartinn. Hiti 8 til 13 stig.

Á föstudag og laugardag: Norðlæg átt, skýjað með köflum, litilsháttar úrkoma norðanlands og líkur á stöku síðdegisskúrum sunnantil. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag: Útlit fyrir norðaustlæga átt og dálitla rigningu en þurrt að mestu suðvestantil. Svipaður hiti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×