Greint er frá samningnum á vef KR og Aberdeen í dag. Í samningnum felst að fulltrúar Aberdeen muni miðla til KR reynslu sinni, þekkingu og sérhæfni varðandi þjálfun, tekjustreymi og aðstöðu, og tengsl við stuðningsmenn og nærsamfélagið.
Í tilkynningu segir að Aberdeen muni til að mynda bjóða KR-inga velkomna á æfingasvæði félagsins í Skotlandi, bæði leikmenn og þjálfara, og koma að árlegum knattspyrnuskóla á vegum KR. Þá munu félögin hjálpast að við að finna sameiginlega bakhjarla.
KR er annað félagið sem að Aberdeen gerir svona samstarfssamning við en áður hafði félagið samið við bandaríska félagið Allstars United í San Jose í Kaliforníu.
Rob Wicks, viðskiptastjóri Aberdeen FC, segir í fréttatilkynningu:
„Þetta er frábært dæmi um samstarf sem Aberdeen FC vill þróa með fleiri fótboltaklúbbum, víðsvegar um heiminn. Við erum mjög spennt fyrir samstarfinu við KR og að sjá samstarfið stækka fótboltann, samfélagið og viðskiptasambönd, auk þess að skapa sameiginlegan vettvang lærdóms og frumkvæðis sem mun nýtast þjálfurum, styrktaraðilum og viðskiptasamböndum félaganna.“
Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR, bætti við:
„Við erum virkilega ánægð með að undirrita þennan samning. Aberdeen FC og KR voru stofnuð um svipað leyti og deila báðir klúbbar svipaðri von um vöxt og velgengni og áætlunum um nýja leikvanga sem og löngun til að auka þátttöku aðdáenda. Svo það eru töluverð samlegðaráhrif á milli okkar.“