Sport

Emin Kadri heldur á­fram að vera ó­sigraður

Andri Broddason skrifar
Emin Kadri Eminsson er enn ósigraður eftir sex bardaga.
Emin Kadri Eminsson er enn ósigraður eftir sex bardaga.

Hnefaleikakappinn Emin Kadri Eminsson hélt áfram á sinni vegferð að verða fyrsti íslenski heimsmeistarinn í atvinnuhnefaleikum í gær. Hann barðist á Spáni við Lettann Dinars Skripkins þar sem Emin vann í annarri lotu.

Emin Kadri barðist frábærlega í gær og sá Skripkins nánast aldrei til sólar. Emin birti myndband af lokaaugnablikunum í annarri lotu og þar sást mótherji hans vera alveg búinn á því. Hann náði góðu höggi framan í Skripkins og skildi hann eftir á hnjánum og byrjaði dómarinn að telja niður.

Skripkins var áhyggjufullur að sjá og virtist vera virkilega þreyttur. Hann horfði á dómarann og sagðist ekki vilja halda áfram í bardaganum. Þá brutust út skiljanlega mikil fagnaðarlæti hjá Emin og félögum hans sem komu að horfa á hann.

Þetta var sjötti bardaginn hans Emin og er hann enn ósigraður. Hann hefur verið iðinn við kolann í ár en þetta var fjórði bardaginn hans á þessu ári. Hann er duglegur að deila öllu tengdu bardögunum sínum á samfélagsmiðlum og fyrir það hefur hann skiljanlega fengið mikla athygli.

Það er óvíst hvaða næsta skref hans á ferlinum verður en vonandi fáum við að sjá hann aftur í hringnum sem fyrst.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×