Meira en áttatíu menn sakaðir um að hópnauðga átta konum Magnús Jochum Pálsson skrifar 2. ágúst 2022 12:09 Mótmælendur fyrir utan dómshúsið í Krugersdorp. AP/Shiraaz Mohamed Meira en áttatíu menn ásakaðir um að hópnauðga átta konum komu fyrir dómara í Krugersdorp í Suður-Afríku í gær. Mennirnir réðust á tökulið sem var að taka upp tónlistarmyndband í yfirgefinni námu í Krugersdorp, nauðguðu konum hópsins og rændu fólkið öllum verðmætum.
Að sögn Elias Mawela, lögreglustjóra Gauteng-héraðs, var 22 manna tökulið, sem samanstóð af tólf konum og tíu körlum, að taka upp tónlistarmyndband í námunni þegar hópur vopnaðra manna réðist á þau. „Hinir grunuðu skipuðu öllum að leggjast á jörðina, nauðguðu átta kvennanna í kjölfarið og rændu eigum allra áður en þeir flúðu af vettvangi,“ sagði Mawela í yfirlýsingu en mennirnir voru handteknir á vettvangi skömmu eftir glæpina. Þá sagði Mawela að 32 meintar nauðganir væru til rannsóknar lögreglu. Hinir grunuðu eru taldir vera ólöglegir námuverkamenn, betur þekktir sem Zama zama, sem grafa eftir gulli í lokuðum námum í grennd við Jóhannesarborg. Auk þess að vera ákærðir fyrir nauðganir og vopnað rán verða einhverjir mannanna einnig ákærðir fyrir ólöglegan námugröft og fyrir að vera ólöglega í Suður-Afríku. Meira en þrjú hundruð manns mótmæltu fyrir utan dómshúsið í Krugersdorp í gær til að lýsa yfir reiði sinni á nauðgununum.
Suður-Afríka Kynferðisofbeldi Mest lesið Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Reyndu að ræna hraðbanka Innlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Komu hesti til bjargar úr gjótu Innlent Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Erlent Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Innlent Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Erlent Holtavörðuheiði enn lokuð Innlent Framkvæmdastjóri WHO staddur á flugvelli í Jemen þegar Ísraelar gerðu árás Erlent Fleiri fréttir Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Framkvæmdastjóri WHO staddur á flugvelli í Jemen þegar Ísraelar gerðu árás Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Slóvakar vilja hýsa friðarviðræður Rússlands og Úkraínu Tuttugu ár frá mannskæðustu náttúruhamförum aldarinnar Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Sjá meira