Hægviðri, skýjað að mestu en þurrt á landinu í dag Magnús Jochum Pálsson skrifar 23. ágúst 2022 06:55 Það verður skýjað í dag en þurrt. Það er þó ekki að sjá ský í Reykjavík að morgni til þar sem er spáð sól og hita fram eftir degi. Vísir/Vilhelm Í dag verður hægviðri, skýjað að mestu leyti og þurrt á landinu samkvæmt spá Veðurstofunnar. Þó verður rigning á Suðausturlandi og víða á austanverðu landinu. Þá verður allhvasst norðaustantil og í Öræfum og eru ökumenn því hvattir til að aka varlega á því svæði.
Frá þessu er greint í hugleiðingum Veðurfræðings á vef Veðurstofunnar en þar segir: „Á landinu eru hægir vindar, skýjað að mestu og yfirleitt þurrt, en langt suður af Ingólfshöfða er allmikil lægð, sem mjakast vestur. Úrkomusvæði lægðarinnar fer inn á Suðausturlandi upp úr hádegi og fer þá að rigna þar.“ Þá segir einnig að muni hvessa nokkuð „af norðaustri í dag og getur orðið allhvasst eða hvasst í Öræfum“ og eru ökumenn, sem hyggjast fara þar um, hvattir til að aka varlega, sérstaklega ef ökutæki þeirra taka á sig mikinn vind. Loks segir að það verði áfram „norðanátt með vætusömu og svölu veðri norðanlands fram að helgi“ en sunnanlands verði „hægara og bjart með köflum“ og mun hlýrra. Hiti á landinu verður á bilinu átta til sextán stig og þar af mildast á suðvesturlandi. Veðrið um tvöleytið í dag en þar virðist langbesta veðrið vera á suðvesturhorninu.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu út vikuna Á miðvikudag: Norðaustan og norðan fimm til tíu metrar á sekúndu og súld eða dálítil rigning, en úrkomulítið á Suður- og Vesturlandi. Bætir í rigningu austan til um kvöldið. Hiti níu til sextán stig, hlýjast á Suðvesturlandi. Á fimmtudag: Norðan átta til fimmtán metrar á sekúndu vestantil á landinu, en annars mun hægari. Rigning eða súld með köflum, en úrkomulítið á Suðurlandi. Hiti átta til fimmtán stig, hlýjast syðst. Á föstudag: Norðan og norðvestan fimm til þrettán metrar á sekúndu, hvassast á annesjum. Dálítil rigning norðantil með fimm til tíu stig, en bjartviðri syðra og hiti að fimmtán stigum. Á laugardag og sunnudag: Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en líkur á stöku skúrum syðra. Hiti átta til fjórtán stig.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira