Systurnar báðar heim í föðurfaðminn á Hlíðarenda Valur Páll Eiríksson skrifar 24. ágúst 2022 14:45 Ásdís Þóra Ágústsdóttir er komin heim til Vals. Vísir/Daníel Þór Ásdís Þóra Ágústsdóttir er snúin aftur í raðir Vals í Olís-deild kvenna í handbolta. Hún kemur heim frá Lugi í Lundi í Svíþjóð eftir um eins og hálfs árs dvöl.
Ásdís sleit krossband í leik með Val skömmu eftir að hún samdi við Lugi í mars í fyrra og mætti því meidd út. Það setti strik í reikninginn ytra en hún var komin í leikmannahóp liðsins undir lok síðustu leiktíðar þegar hún hafði náð sér. Ásdís er tvítug en hún skoraði 24 mörk og gaf tíu stoðsendingar í tólf leikjum fyrir Val veturinn 2020-2021 áður en hún hélt út til Svíþjóðar. Hún var þá hluti af Valsliðinu sem vann þrefalt árið 2019. „Ásdís er bæði óvænt en um leið góð viðbót við okkar leikmannahóp. Hún þarf tíma til að koma sér aftur almennilega til baka inn á völlinn eftir meiðslin og þann tíma fær hún hjá okkur,“ er haft eftir Ágústi Jóhannssyni, þjálfara Vals um endurkomu Ásdísar í tilkynningu frá Val. Ágúst er jafnframt faðir Ásdísar en hann endurheimtir báðar dætur sínar frá Lundi. Lilja Ágústsdóttir, yngri systir Ásdísar, samdi við Val fyrr í sumar, en hún hafði einnig verið á mála hjá Lugi. Valur hefur einnig fengið Hrafnhildi Önnu Þorleifsdóttur frá FH og Söru Dögg Hjaltadóttur frá HK Skien fyrir komandi átök í Olís-deildinni. Valskonur urðu bikarmeistarar á síðustu leiktíð, lenti í 2. sæti í deildarkeppninni og tapaði 3-1 í fyrir Fram í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn.
Olís-deild kvenna Valur Sænski handboltinn Mest lesið Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Fleiri fréttir FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Sjá meira