Ten Hag og Rashford slógu öllum við í september Sindri Sverrisson skrifar 30. september 2022 13:31 Erik ten Hag og Marcus Rashford þóttu skara fram úr í september. Manchester United spilaði aðeins tvo leiki í mánuðinum en vann báða. @manutd Marcus Rashford, sóknarmaður Manchester United, var í dag útnefndur besti leikmaður septembermánaðar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Þetta er í annað sinn á ferlinum sem að Rashford er valinn leikmaður mánaðarins. Hann skoraði tvö mörk og átti stoðsendingu á Antony í 3-1 sigrinum gegn Arsenal, eftir að hafa einnig lagt upp mark fyrir Jadon Sancho í 1-0 útisigri á Leicester. Rashford hafði áður fengið viðurkenninguna eftir janúar 2019. Hollendingurinn Erik Ten Hag var valinn besti knattspyrnustjóri mánaðarins, á aðeins sínum öðrum mánuði í deildinni. Always a team effort. #MUFC || @PremierLeague pic.twitter.com/5DP60aPN3d— Manchester United (@ManUtd) September 30, 2022 Lítið var spilað í ensku úrvalsdeildinni í september vegna landsleikjahlés og andláts Elísabetar Bretlandsdrottningar. Leikjum United við Crystal Palace og Leeds var báðum frestað vegna andlátsins. Rashford er hins vegar í kapphlaupi við tímann um að ná Manchester-slagnum við City á sunnudaginn en hann er að jafna sig af meiðslum og hefur ekki getað æft í vikunni. Hann var því ekki í enska landsliðshópnum sem lék í Þjóðadeildinni í vikunni og í síðustu viku. United á nú fyrir höndum þétta leikjadagskrá en liðið spilar níu leiki í október og svo fjóra leiki til viðbótar áður en HM-hléið tekur við um miðjan nóvember.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Fótbolti City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Handbolti Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu Sjá meira