„Þetta er bara geggjað sko,“ segir Helgi Björns í samtali við Vísi. Hann segir meðlimi hljómsveitarinnar vera í óða önn að dusta rykið af gömlu góðu danssporunum. Hann segir þá einnig mætta fyrir framan spegilinn að athuga hvort fótahreyfingarnar virki enn. Helgi segir sérstaka stemningu myndast þegar allir upprunalegu meðlimir hljómsveitarinnar spila saman.

„Þegar SSSól mætti á böll, eða hvert sem er, þá gerðum við allt vitlaust og við ætlum að sjá hvort það sé ekki hægt að gera það enn þá,“ segir Helgi um þrjátíu og fimm ára afmælistónleika hljómsveitarinnar.
Til að hita upp fyrir stórveisluna ætlar hljómsveitin SSSÓL að hleypa lesendum inn á æfingu í beinni útsendingu hér á Vísi og á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi. Helgi, Jakob, Eyjó, Hrafn, Ingó og Stebbi munu þar taka nokkur vel valin lög frá æfingu fyrir viðburðinn sjálfan.
„Það besta við þessa tónleika er að þú þarft ekki frí í vinnunni - Þetta gigg kemur bara til þín þar sem þú ert.“