Jón Axel ætlar að núllstilla sig og kenna Óla Óla körfubolta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2022 12:31 Jón Axel Guðmundsson ræðir málin við Svövu Kristínu Grétarsdóttur. Vísir Grindvíkingar fengu frábærar fréttir í vikunni þegar landsliðsmaðurinn Jón Axel Guðmundsson ákvað að spila með félaginu í Subway deildinni í vetur.
Jón Axel var búinn að vera að leita sér að liði úti og þess vegna byrjaði hann ekki tímabilið með Grindavík. Hann fékk ekkert tilboð sem heillaði hann nógu mikið. „Ekkert sem mér fannst vera eitthvað betra en að koma aðeins heim og núllstilla sig. Fyrir mig fannst mér þetta vera besta ákvörðunin á þessum tímapunkti,“ sagði Jón Axel Guðmundsson í samtali við Svövu Kristínu Grétarsdóttur. Það er engin uppgjöf í kappanum þegar kemur að atvinnumennsku erlendis. Klippa: Jón Axel: Nóg eftir af mínum ferli „Ég er bara 25 ára núna og það er nóg eftir af mínum ferli. Það er gott að koma aðeins heim. Ég var búinn að vera sex ár úti núna samfellt og það er fínt að koma aðeins heim og fá að leika með strákunum. Reyna að kenna Óla Óla einhvern körfubolta,“ sagði Jón Axel í léttum tón. En er Ólafur Ólafsson svona lélegur í körfubolta? „Svona inn á milli. Stundum hittir hann og stundum ekki. Það þarf aðeins að bæta þetta,“ sagði Jón Axel í gríni um fyrirliða sinn hjá Grindavík. „Ég er mjög spenntur persónulega að spila með Grindavík. Það er langt síðan ég spilaði hérna síðast og það hefur mikið breyst síðan ég var síðast á Íslandi,“ sagði Jón Axel. „Það er gaman að fá Keflavík í fyrsta leik sem er alvöru áskorun. Það er mjög mikil spenna fyrir fimmtudeginum,“ sagði Jón Axel. Hann er ekki búinn að ákveða það hvort hann klári tímabilið með Grindavík. „Á þessum tímapunkti er ég ekki kominn svo langt. Markmiðið er eins og ég sagði að komast út en það kemur bara þegar það kemur,“ sagði Jón Axel. Fyrsti leikur Jóns Axel er á Keflavík í kvöld en hann verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og hefst klukkan 20.15.
Subway-deild karla UMF Grindavík Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Íslenski boltinn „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Fleiri fréttir Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Sjá meira