Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði á bilinu núll til sjö stig þar sem mildast verður syðst en allvíða næturfrost.
„Áfram hægur vindur á morgun, laugardag. Rigning á köflum sunnan- og suðvestanlands seinnipartinn og um kvöldið, en þurrt í öðrum landshlutum. Svipað hitastig áfram,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag (fyrsti vetrardagur): Hæg suðlæg eða breytileg átt, skýjað að mestu og dálítil væta á Suður- og Suðvesturlandi. Hiti 1 til 7 stig, mildast suðvestantil.
Á sunnudag: Suðlæg átt, 3-10 m/s, hvassast vestast og sums staðar dálítil væta, en skýjað og þurrt norðan- og austantil. Hiti breytist lítið.
Á mánudag: Austan 8-13 syðst, en annars hægari. Rigning um landið suðvestanvert, en þurrt að kalla annars staðar. Heldur hlýnandi.
Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag: Austlæg eða breytileg átt og rigning með köflum, einkum sunnan- og austantil. Fremur milt í veðri.