„Við áttum erfitt uppdráttar fyrsta hálftíma leiksins þar sem Ajax pressaði okkur hátt og við þurftum að verjast af mikilli ástríðu. Þú verður að komast í gegnum þessa kafla leiksins,“ sagði Klopp um byrjun leiksins á Johan Cruyff -vellinum í Amsterdam.
„Við breyttum leikkerfinu aðeins, fórum í hálfgerð demants-miðju. Við töldum það vera skynsamlegt þar sem við vildum ekki hafa Darwin [Núñez] alltaf út á væng.“
„Svo skoruðum við mark sem var gjörsamlega frábært. Við byrjuðum síðari hálfleik mjög vel, skorðum tvo gullfalleg mörk og stjórnuðum leiknum virkilega vel eftir það. Við erum komnir áfram í útsláttarkeppnina og ég mun aldrei taka því sem sjálfsögðum hlut.“
„Hann spilaði virkilega vel, bæði sóknar- og varnarlega. Hann lagði sig allan í leikinn og ég kann að meta það,“ sagði Klopp að endingu um Núñez en framherjinn skoraði eitt mark ásamt því að brenna af algjöru dauðafæri.
Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.