En ef þér finnst þú hafir breytt hlutum í vitleysu þá er núna eins og skipting inni í orkusviðinu þínu og þú getur breytt stöðu þinn á einu andartaki. Það eru allskyns leiðindahindranir hjá þér og fyrir framan þig, en þetta er eitthvað sem breytist svo hratt að þú hugsar „hvað er eiginlega að gerast?“. Það verður slúðri skellt á þig og einhverjum skít sem þú átt ekki skilið, en svo allt í einu ertu búinn að hreinsa það frá þér. Svo gefðu því ekki eins mikinn gaum eða athygli, því að svona orka á það ekki skilið.
Það verður svo mikill þeytingur á þér án þess að þú sért jafnvel búin að plana það. Það er nefnilega þannig að lífið gerist meðan þú heldur að þú sért að plana það.
Það er stöðuhækkun eða stöðubreyting í kortunum sem mun færa þér ánægju og visst frelsi. Það verða ekki endilega peningar sem fylgja þessu, enda eru þeir alls ekki sá kraftur sem breytir öllu. Þú verður að hugsa og taka ákvarðanir eins fljótt og þú getur því að lífið þitt er að fara inn í hratt tímabil sem er eins og rokið á Íslandi, það kemur og fer fyrirvaralaust.
Þú færð lausnirnar til þín, en ef þú framkvæmir þær ekki þá byrjar heilinn að rugla lífið þitt. Í þér býr töluverð spádómsorka, svo að þú finnur alltaf meira og meira á þér eftir því sem aldurinn færist yfir. Að vera spámaður er svipað og að vera listamaður, allt þarf að þróa og núna er rétti tíminn til þess að sýna að þú getir þetta. Það er töluvert mikið að breytast hjá þér innan næstu þriggja mánaða, en svo margt sem gerist á því tímabili sem er að koma til þín núna. Vegna þess að fræið er komið í moldina, er það byrjað að spíra og verður að aflmiklu tré. Í ástinni þarf traust að vera til staðar, fling og lauslæti geta skapað svo mörg vandamál að þú myndir óska að þú hefðir ekki gefið því færi. Og í vinnunni þínni, skólanum eða hvar sem þú ert og tekur ekki afstöðu til deilumála gæti því sprungið í loft upp.
Knús og kossar, Sigga Kling