Hvasst á sunnanverðu landinu og gular viðvaranir í gildi Atli Ísleifsson skrifar 23. nóvember 2022 07:44 Hvassast verður sunnantil og má víða reikna snörpum vindhviðum sem geti staðbundið náð yfir 30 metrum á sekúndu. Veðurstofan Hvesst hefur í nótt og er nú norðaustan 13 til 18 metrar á sekúndu en 18 til 25 í vindstrengjum á sunnanverðu landinu.
Gular viðvaranir tóku gildi á Suðurlandi, Suðausturlandi og Miðhálendi í morgun vegna norðaustan storms eða hvassviðris og eru þær ýmist í gildi til klukkan 18 eða 19. Á vef Veðurstofunnar segir að á Norður- og Austurlandi sé spáð skúrum eða éljum og rigningu sunnanlands. Hins vegar verði bjart með köflum og þurrt suðvestantil. Hiti verður á bilinu eitt til sjö stig þar sem hlýjast verður syðst. Það dragi svo hægt úr vindi seinnipartinn. „Austan og norðaustan 8-15 á morgun en sums staðar heldur hvassara sunnantil og á Vestfjörðum. Rigning í flestum landshlutum og búast má við talsverðri úrkomu fyrir austan. Yfirleitt skýjað suðvestanlands með dálítilli vætu af og til,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 11 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðaustan 8-15 m/s en 13-20 um landið suðaustanvert. Rigning, einkum austanlands, en þurrt að kalla á Vesturlandi. Hiti 3 til 8 stig yfir daginn. Á föstudag: Austan og norðaustan 8-15. Yfirleitt þurrt um landið suðvestanvert, en rigning með köflum í öðrum landshlutum og talsverð rigning á Austfjörðum. Hiti breytist lítið. Á laugardag: Suðaustan og austan 8-15 og rigning eða súld öðru hverju, einkum suðaustantil. Hiti 3 til 8 stig. Á sunnudag: Austlæg átt með rigningu, en úrkomulítið á Vesturlandi. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Gengur í norðlæga átt með éljum norðantil og skúrum fyrir austan en bjart með köflum á Suðvesturlandi. Hiti um eða yfir frostmarki norðanlands en allt að 7 stigum syðst. Á þriðjudag: Útlit fyrir hæga breytilega átt, bjart með köflum og frost 0 til 8 stig, kaldast í innsveitum norðaustanlands. Hæg vestanátt með stöku skúrum og hiti yfir frostmarki vestast síðdegis.
Veður Mest lesið Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Erlent Trump: Khamenei látinn Erlent Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Erlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Innlent Gerir stólpagrín að Von der Leyen Erlent Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Erlent Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Erlent „Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Fréttir Íslendingar óska eftir aðstoð Innlent Fleiri fréttir Appelsínugul viðvörun á morgun Vara við stórhríð á Austurlandi Snjókoma víða en bjart sunnan heiða Væta sunnantil og töluverð hláka í höfuðborginni Hvetja fólk til að fara fyrr heim vegna veðurs Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu vegna snjókomu Snjókoma á höfuðborgarsvæði í dag og á morgun Úrkomusvæði með snjókomu fer yfir vesturhelming landsins Gular veðurviðvaranir á Austurlandi Snýst í norðanátt og snarpar hviður austantil Útlit fyrir lægðagang og umhleypinga Hvöss austanátt fylgir alldjúpri lægð í dag Gul veðurviðvörun á Suðausturlandi Hitinn að skríða yfir frostmark sunnan heiða Herðir á frosti í kvöld Él og snjókoma norðan- og austantil Snjókoman náði ekki yfir Hellisheiðina Útlit fyrir hríðarbyl á Suðurlandi Draga kalt heimskautaloft yfir landið næstu daga Vara við snörpum vindhviðum Köldu heimskautalofti enn beint til landsins Kaldri norðlægri átt beint til landsins Dálítil él norðan- og austantil en annars bjart að mestu Dregur úr vindi og kólnar í kvöld Vindasamt víða á landinu Áfram léttskýjað á Suðvesturhorninu Éljagangur og slabb í kortunum Skil að ganga yfir landið með tilheyrandi úrkomu Ekkert lát á austlægum áttum Allhvass vindur og svalari en síðustu daga Sjá meira