Myndbandinu líklega lekið af lögreglunni: „Erum mjög óhress með þetta“ Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 23. nóvember 2022 11:07 Myndbönd af hnífaárásinni á Bankastræti Club eru í mikilli dreifingu á samfélagsmiðlum. Grunur leikur á að þeim hafi verið lekið úr gagnagrunni lögreglunnar. Grunur leikur á að myndböndum af hnífaárásinni á Bankastræti Club á síðustu viku, hafi verið lekið úr gagnagrunni lögreglunnar. Yfirlögregluþjónn lítur málið alvarlegum augum.
Myndböndin eru tvö talsins og eru í mikilli dreifingu á samfélagsmiðlum. Í þeim sjást hópur grímuklæddra manna ryðjast inn á skemmtistaðinn þar sem þeir ráðast á þrjá unga menn, lemja, sparka í þá og stinga ítrekað með hnífum. Í myndbandinu sést á tölvuskjá í tákn skráningakerfis lögreglunnar, Löke. Stækkunarglerið sem sést vinstra megin á skjánum er tákn skráningakerfis lögreglunnar, Löke. Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn staðfestir í samtali við fréttastofu að það líti allt út fyrir að myndbandinu hafi verið lekið af aðila innan lögreglunnar. Hann segir málið í skoðun og að það hafi þegar verið tilkynnt til héraðssaksóknara. „Annað embætti tekur nú málið til rannsóknar. Héraðssaksóknari fer með rannsókn máls þegar möguleiki er á því að starfsemi lögreglunnar sé brot gegn lögum,“ segir Grímur. Hann lítur málið alvarlegum augum. „Það er hér verið að dreifa trúnaðargögnum og rannsóknarupplýsingum úr málinu. Við þurfum bara að meta hvaða áhrif þetta hefur á rannsóknina. En við erum mjög óhress með að þetta hafi farið í dreifingu.“ Grímur vill ekki tjá sig um hvort einhver sé grunaður um málið. Myndbandið má sjá hér að neðan.
Lögreglumál Hnífstunguárás á Bankastræti Club Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Sjá meira