Never Gonna Not Dance Again, eða Ætla aldrei að ekki dansa aftur, er nýjasti smellur söngkonunnar sem er með tæplega 27,5 milljón mánaðarlega hlustendur á streymisveitunni Spotify. Hún gaf út lagið Irrelevant fyrr á árinu sem rataði einnig á Íslenska listann og því mætti kalla hana góða vinkonu listans í ár.
David Guetta og Bebe Rexha sitja staðföst í fyrsta sætinu með lagið I’m Good (Blue) og Elton John og Britney Spears fylgja fast á eftir í öðru sæti með lagið Hold Me Closer. Þá er Willy Williams mættur í þriðja sætið með lagið Trompeta og hækkar sig um tvö sæti á milli vikna.
Íslenski listinn er fluttur alla laugardaga á milli klukkan 14:00 og 16:00 á FM957.
Lög íslenska listans:
Íslenski listinn á Spotify: