Það er gjarnan talað um jólin sem hátíð barnanna. Það gleymist þó stundum að taka það inn í myndina að jólaösin, sykurneyslan og rútínuleysið, sem eru oft fylgifiskar jólanna, geta haft neikvæð áhrif á börnin.
„Það er svo mikið um að vera. Það er ýmislegt að gerast í skólanum og ýmislegt um að vera heima. Það er allt af hinu góða en þetta getur orðið of mikið,“ segir Ásgerður sem lumar á fimm góðum ráðum til þess að draga úr stressi og kvíða barna í desember.

-
Rólegir foreldrar: „Ég myndi segja að fyrsta og besta ráðið sé að foreldrar séu sjálfir í rólegu tempói og séu svolítið skipulagður og taka börnin svolítið með inn í dæmið. Það eru eiginlega foreldrarnir sem gefa tóninn fyrir það hvernig börnin haga sér.“
-
Södd börn: „Reyna að forðast það að fara með svöng börn inn í verslunarmiðstöðvar og á hátíðarsamkomur. Þegar börn eru svöng þá verða þau svo tryllt og tens. Það helst alveg í hendur að vera svangur og að vera þreyttur. Það er erfitt, jafnvel fyrir fullorðna, að takast á við hávaða og mikla örvun þegar börnunum okkar líður ekki sem best.“
-
Næringarríkt snarl: „Við þurfum að fylgjast með því hvað börnin okkar eru að borða. Í svona asa og þegar við lendum í svona aðstæðum þá verður skyndibiti oft fyrir valinu því það er kannski ekki tími fyrir reglubundnar máltíðir. Þá er ráðið að vera með holt nesti í farteskinu.“
-
Útivist og hreyfing: „Gefa sér tíma til þess að fara út með börnin og viðra þau, leika sér, hoppa um og hlaupa og fá súrefni ofan í lungun. Við þurfum að huga að því líka.“
- Ekki plana of mikið: „Síðasta ráðið er að forðast að plana um og of. Að hafa dagskránna ekki það skipulagða að það séu einhverjir skipulagðir viðburðir á hverjum einasta degi. Höfum tíma til að taka því rólega og setjast út í kósýhorn og kveikja á kertum og lesa góða bók með barninu. Plana frekar rólegheit.“