Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar við HR Atli Ísleifsson skrifar 1. desember 2022 15:00 Jón Haukur Arnarson. HR Jón Haukur Arnarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar við Háskólann í Reykjavík. Hann hefur starfað hjá Matís síðustu ár.
Frá þessu segir í tilkynningu frá HR. Kemur þar fram að hann hefji störf í upphafi árs 2023. „Í verkahring rekstrarsviðs HR eru upplýsingatækni, fasteignir, Opni háskólinn í HR, fjölbreytt nemendaþjónusta og ýmis stoðþjónusta fyrir bæði nemendur og starfsfólk. Framkvæmdastjóri rekstrar situr í framkvæmdaráði HR, ásamt sviðsforsetum, deildarforsetum, fjármálastjóra, mannauðsstjóra, formönnum náms- og rannsóknaráða, formanni Stúdentafélags HR og rektor háskólans. Jón Haukur hefur undanfarin sjö ár verið sviðsstjóri rekstrarsviðs hjá Matís ohf. Árin 2008 til 2015 var hann rekstrarstjóri, mannauðsstjóri og verkefnastjóri hjá Matís. Áður var hann meðal annars yfirmaður rannsóknarstofu hjá Hilton Meats Retail Ltd. í Bretlandi, gæðastjóri hjá Coors Brewing Company í Colorado og sérfræðingur í bókhaldi hjá lífeyrisdeild Kaupþings. Hann var stjórnarmaður hjá Marinox ehf. 2013-2015 sem sérhæfir sig í framleiðslu lífvirkra efna úr þangi og hefur verið stjórnarmaður síðan 2015 hjá UNA skincare sem vinnur að framleiðslu snyrtivara með lífvirkum innihaldsefnum úr þangi. Jón Haukur lauk BSc-gráðu í matvælafræði frá Háskóla Íslands árið 2000 og meistaragráðu í viðskiptafræði með áherslu á rekstrar- og gæðastjórnun frá HÍ og Colorado University at Boulder árið 2004. Hann lauk GMP-stjórnendaþjálfun við Harvard Business School árið 2015,“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Háskólar Skóla - og menntamál Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira