Síðasti dagur sunnanáttarinnar í bili Atli Ísleifsson skrifar 2. desember 2022 07:16 Hiti verður á bilinu eitt til sjö stig í dag en kólnar svo í kvöld. Vísir/Vilhelm Dagurinn í dag er síðasti dagurinn í bili með sunnanátt og skúrum á sunnan- og vestanverðu landinu og bjartviðri norðaustanlands.
Á vef Veðurstofunnar segir að í kvöld dragi úr vindi og úrkomu. Hiti verður á bilinu eitt til sjö stig en kólnar svo í kvöld. „Á laugardag verður hægur vindur en norðlæg átt 5-10 austast. Bjart að mestu en skýjað og smá væta á Norðausturlandi. Hiti 0 til 5 stig að deginum. Það verður suðvestanátt á sunnudag, yfirleitt 3-10 m/s en heldur hvassara norðvestantil. Skýjað og dálítil væta vestanlands en annars bjart að mestu. Hiti um frostmark austantil en allt að 6 stigum við vesturströndina. Eftir helgi snýst vindurinn í norðlæga átt. Það verður yfirleitt bjart með köflum, einkum sunnantil en él norðan heiða og frekar kalt í veðri,“ segir í hugleiðingum verðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Hæg norðlæg eða breytileg átt en 5-10 m/s með austurströndinni. Léttskýjað sunnanlands, en skýjað að mestu og sums staðar dálítil él um landið norðanvert. Hiti um eða yfir frostmarki. Á sunnudag: Breytileg átt 3-8. Skýjað vestanlands með dálitlum éljum á Vestfjörðum, hiti 1 til 5 stig. Bjart veður og vægt frost annars staðar. Á mánudag: Hæg breytileg átt en norðan 5-13 austast. Skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti um og undir frostmarki. Á þriðjudag: Norðan 3-8 og bjartviðri, en 8-13 með norður- og austurströndinni og stöku él. Kólnandi veður. Á miðvikudag og fimmtudag: Stíf norðanátt með éljum á Norður- og Austurlandi, en léttskýjað sunnan heiða. Frost 2 til 7 stig.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira