Raphael Warnock, sitjandi öldungadeildarþingmaður og frambjóðandi Demókrataflokksins, fékk fleiri atkvæði en andstæðingur sinn, Herschel Walker, í þingkosningunum í nóvember en þar sem hann fékk ekki yfir 50 prósent atkvæða þarf lögum samkvæmt að kjósa aftur.
Repúblikanar náðu meirihluta innan fulltrúadeildarinnar eftir kosningarnar í nóvember og stjórna nú 221 sæti á móti 213 sætum Demókrata. Demókratar héldu þó sínum meirihluta í öldungadeildinni og stjórna nú 50 sætum á móti 49 sætum Demókrata.
Með sigri Warnock í dag gætu Demókratar tryggt sér öruggan meirihluta en ef það kemur til þess að atkvæðagreiðslur innan deildarinnar eru jafnar þá hefur varaforsetinn úrslitaatkvæðið og því var ljóst eftir kosningarnar að Demókratar myndu stjórna deildinni óháð niðurstöðunni í Georgíu.
Warnock með naumt forskot
Aðeins nokkrar skoðanakannanir voru framkvæmdar fyrir aukakosningarnar en samkvæmt könnun CNN er Warnock aðeins með um fjögurra prósentustiga forskot á Walker. Könnun SSRS bendir til að munurinn verði meiri, þar sem Warnock mældist með 61 prósent fylgi á móti 36 prósentum Walkers.
Democratic Sen. Raphael Warnock of Georgia holds a narrow lead over Republican challenger Herschel Walker among those likely to vote in a runoff election Tuesday, according to a new CNN Poll conducted by SSRS https://t.co/As3kMVk3vG
— CNN Politics (@CNNPolitics) December 2, 2022
Báðir hafa þeir staðið í ströngu yfir helgina við að reyna að afla sér atkvæða fyrir stóra daginn á morgun.
Warnock, sem einnig er prestur, tók sæti í öldungadeildinni eftir aukakosningar í janúar 2021 en sama staða var þá uppi á teningnum eftir þingkosningar 2020.
Í ræðu sinni í Athens í Georgíu í gær hvatti hann kjósendur til að treysta ekki á að sigurinn væri í höfn, þó að kjörsókn hafi verið góð utankjörfundar. „Ekki kasta niður boltanum fyrr en þú ert kominn í mark,“ sagði Walker og vísaði þar til bandarísks fótbolta.
NEW: Georgia Senate runoff smashes early voting records and attracts new voters
— Sahil Kapur (@sahilkapur) December 3, 2022
It s topped 1.85 million voters (with more absentees arriving)
56% women, 44% men
Estimated partisan breakdown: 52% Democratic, 39% Republican https://t.co/320oPzzgoC
Sama dag stóð Walker fyrir fjöldafundi í Loganville en þar sagði hann tíma til kominn að kjósendur láti rödd sína heyrast og að atkvæði þeirra yrðu talin.
Hann hefur þó sætt gagnrýni og verið viðriðin hneykslismál þar sem hann hefur verið sakaður um að neyða konur í fóstureyðingu, á sama tíma og hann hefur lýst því yfir að hann sé andstæðingur fóstureyðinga. Þá vakti athygli að hann virtist ruglast á hvaða deild þingsins hann væri að bjóða sig fram til í viðtali við Politico á laugardag.
In a brief interview with POLITICO on Saturday, Walker seemed to mistake which chamber of Congress he was running for and also appeared to think the outcome of his race would determine control of the Senate https://t.co/lewQdrbQ9q
— Jonathan Lemire (@JonLemire) December 5, 2022
Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði þá í viðtali í gær að það væri nauðsynlegt að fólk kysi og sagði Warnock styðja við allt það sem skipti íbúa máli.
Á sama tíma er Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, sagður skipuleggja fjöldafund til stuðnings Walker í gegnum fjarfundarbúnað.