En ósanngjarnt er að segja að sparnaðaraðgerðirnar snerti borgarfulltrúana ekki neitt því borgarstjórnin hefur ákveðið að fórna sumarbústað sínum sem stendur við Úlfljótsvatn; setja hann í söluferli.
Þetta var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum í borgarstjórn í vikunni nema Hjálmars Sveinssonar Samfylkingu. Það kemur reyndar á daginn að hann styður málið.
„Ég hef ekkert á móti því að selja bústaðinn, nota hann aldrei. Þetta mótatkvæði var fljótfærni,“ segir hann í stuttu samtali við Vísi.
Tillaga þess að bústaðurinn verði seldur kemur frá Sjálfstæðisflokknum en áætlað er að verðmæti sumarhússins sé á bilinu 25 til 30 milljónir króna og verður söluandvirðið verður fært á handbært fé.
Bústaðurinn vinsæll og afar vel nýttur
En hvaða bústaður er þetta eiginlega? Þannig er að skrifstofa borgarstjórnar hefur haft umsjón með sumarhúsi borgarstjórnar. Skrifstofan annast utanumhald og rekstur hússins, útleigu og innheimtu greiðslna fyrir dvöl að sögn Helgu Bjarkar Laxdal skrifstofustjóra borgarstjórnar.
Húsið er 50 rúmir fermetrar á einni hæð og skiptist í forstofu, alrými með stofu og eldhúsi, baðherbergi með sturtu, þvottavél og þurrkara, hjónaherbergi með rúmi sem er 160 x 200 (eða 2 rúm 80x200) auk tveggja svefnherbergja með kojum (svefnaðstaða fyrir 6) Í geymslu er gasgrill. Útipallur er svo með heitum potti, borði, stólum og sólstólum.
„Húsið hefur verið afar vel nýtt og náð allt að 100 prósenta nýtingu í júní, júlí og ágúst en á þeim tíma er hann leigður út í viku í senn. Borgarfulltrúar hafa fyrsta forgang að sumarhúsinu í þessar sumarvikur og þeir sækja um með því að óska eftir ákveðinni viku,“ segir Helga Björk.
Borgarfulltrúar njóta forgangs
Og aðeins nánar um fyrirkomulagið við úthlutunina... Helga Björk segir að ef margir óska eftir sömu viku til dvalar í bústaðnum hefur sá borgarfulltrúi forgang sem ekki hefur nýtt sér sumarhúsið áður/á síðasta sumri. Ef fleiri en einn stendur þá eftir, er dregið á milli aðila. Þær vikur sem ekki ganga út til í þessari úthlutun eru boðnar 1. varaborgarfulltrúum. Sömu reglur gilda um úthlutun í vetrarleyfi grunnskóla og um páska.
„Utan þess tíma sem fer í úthlutun hafa borgarfulltrúar og fyrstu varaborgarfulltrúar einnig forgang en einnig getur yfirstjórn borgarinnar, aðstoðarmaður borgarstjóra, starfsmenn borgarstjórnarflokka, og umsjónarmaður hússins á skrifstofu borgarstjórnar óskað eftir að fá afnot af húsinu þegar það er laust,“ segir Helga Björk. En nýting á þessum tíma hefur verið um fimmtíu prósent.
Vísi lék forvitni á að vita hvenær bústaðurinn var reistur en ekki tókst, með þetta skömmum fyrirvara, að óska eftir nákvæmum upplýsingum um byggingarár. En á fundi borgarráðs 23. september 1986 var lagður fram samningur um byggingu og framlög Úlfljótsskála. „Bygging skálans, orlofshúsa starfsmannafélags Reykjavíkur og sumarhúss borgastjórnar fer fram fór fram á því tímabili og var lokið um mitt ár 1990.“
Vikuleigan verið 32 þúsund krónur
Að sögn Helgu Bjarkar var uppbygging sumarbústaðahverfisins við Úlfljótsvatn samvinnuverkefni Starfsmannafélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar. „Eitt orlofshús var sett niður fyrir borgarstjórn í ljósi þess að borgarfulltrúar eru ekki aðilar að stéttarfélögum og áttu að hafa kost á afnotum af sumarhúsi, sem þeir geta ekki gert í gegnum stéttarfélag.“
Ekki er hægt að segja að borgarfulltrúar þurfi að tefla heimilisbókahaldi sínu í háska með því að dvelja í bústaðnum. Lengstum var það þeim að kostnaðarlausu en á fundi forsætisnefndar 29. janúar 2010 var lagt fram bréf þáverandi skrifstofustjóra borgarstjórnar þar sem hann kynnir þá ákvörðun að frá 1. febrúar verði tekið gjald fyrir afnot af svokölluðum borgarráðsbústað við Úlfljótsvatn. Gjaldið fylgi gjaldskrá orlofshúsa Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og hefur það fyrirkomulag haldist óbreytt síðan.
„Verðið fyrir vikuleigu á sumrin er 32 þúsund. Helgarleiga er á 13 þúsund, og aukanóttin kostar 3500 krónur,“ segir í svari Helgu Bjarkar.