Vísir fór á stúfana og spurði nokkra aðila sem eru betur að sér í handbolta en flestir. Alls var rætt við fimm sérfræðinga. Þeir eru:
- Stefán Árni Pálsson, þáttastjórnandi Seinni bylgjunnar
- Jóhann Gunnar Einarsson, sérfræðingur Seinni bylgjunnar
- Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamaður á RÚV
- Svava Kristín Grétarsdóttir, íþróttafréttakona á Stöð 2
- Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, fyrrverandi landsliðskona
Aron gengur í raðir FH næsta sumar og mun styrkja lið - sem er nú þegar í 2. sæti Olís deildar - til muna. FH-ingar ráða sér vart fyrir kæti enda hefur Aron verið gríðarlega sigursæll á sínum ferli.
„Ætti að lyfta öllu upp“
„Þetta gerir gríðarlega mikið fyrir deildina. Að fá svona afgerandi stjörnu heim ætti að lyfta öllu upp, mest hjá FH en líka hjá öðrum. Það verður væntanlega gríðarlegur áhugi á öllu sem tengist FH hvar sem þeir koma og spila,“ sagði Einar Örn.
„Það er kannski of snemmt að spá um það. Hann lyftir gæðum liðsins mikið og gerir aðra betri en það þarf fleiri til. Það eru ungir og efnilegir strákar í liðinu en þar vantar kannski reynslu. Á móti kemur að það eru pottþétt leikmenn á markaðnum sem vilja spila með kappanum.“
„Risastórt fyrir deildina“
„Þetta er náttúrulega risastórt fyrir deildina, Hann hefur verið einn af bestu leikmönnum heims síðustu 8 ár. Ég tel að hann muni hafa svipuð áhrif og þegar [Roberto Julián] Duranuna kom í deildina en þá mætti fólk á völlinn bara til að horfa á hann. Man að ég mætti á Grótta-KA bara til að sjá hann spila,“ sagði Jóhann Gunnar.
„Aron er ekki að koma í FH til að vera með og hafa gaman. Með þetta unga lið sem FH er með í höndunum er Aron fullkomið púsl. Það eru foréttindi fyrir þessa ungu stráka að æfa með Aroni og læra af honum, hann mun lyfta öllu á hærra plan. FH mun alltaf vera með í samtalinu þegar rætt er um íslandsmeistaratitilinn þegar Aron er í FH. Ég held að „taka úr umferð“ muni koma sterkt inn hjá öðrum liðum á næstu leiktíð.“
„Stærsta nafnið sem kemur í efstu deild í sögunni“
„Endurkoma Arons fyrir Olís deildina er risastórt strax þó hann komi ekki í deildina fyrr en eftir núverandi tímabil. Stærsta nafnið sem kemur í efstu deild í sögunni, sigursælasti handboltamaður okkar Íslendinga frá upphafi. Hann er með 30 stóra titla á bakinu með einhverjum stærstu og bestu liðum í heimi. Hann er á góðum aldri, hann er 33 ára á næsta ári og á alveg að geta spilað í nokkur ár í deildinn. Það sem er kannski líka stórt að hin liðin þurfa núna að bregðast við og styrkja sig,“ sagði Stefán Árni Pálsson.
„FH getur orðið Íslandsmeistari á þessu tímabili svo þeir geta svo sannarlega orðið Íslandsmeistarar á næsta tímabili. Miðað við hvernig liðið er skipað núna; mjög ungt og spennandi lið með reynslubolta inn á milli. Ef þú setur Aron Pálmarsson inn í það þá segi ég að FH ætti að vera sigurstranglegasta liðið á næsta tímabili.“
„Spurningin er ekki hvort heldur hvenær hann muni taka þessa deild yfir“
„Aron hefur verið einn besti handboltamaður heims síðasta áratuginn svo bara það eitt að fá slíkt nafn í deildina okkar hefur gríðarlega mikla þýðingu. Persónulega finnst mér að allir íslenskir handbolta áhugamenn eigi að fagna komu hans í deildina okkar,“ sagði Svava Kristín Grétarsdóttir.
„Eins og staðan er núna getur maður ekki ímyndað sér annað en að hann taki deildina yfir og verði óstöðvandi. Við höfum samt séð atvinnumenn koma heim og vera smá tíma að finna sig svo það verður auðvitað fróðlegt að sjá hvernig hann kemur inn, en það ótvírætt að spurningin er ekki hvort heldur hvenær hann muni taka þessa deild yfir og skila FH öllum þeim titlum sem í boði eru. Aron þekkir ekkert annað en að vinna titla. Hans handbolta greind er engri lík og hann mun gera alla betri í kringum sig hjá FH.“
„Stórkostleg tíðindi“
„Þetta eru stórkostleg tíðindi fyrir deildina og mun pottþétt auka áhugann á henni og auðvitað styrkja deildina,“ sagði Hrafnhildur Ósk Skúladóttir.
„Er nokkuð viss um að nú verði auðveldara að fá fleiri inn með honum og þeir munu klárlega vera í baráttunni um titilinn. Við verðum allavega að vona að Aron sé ekki alveg saddur eftir alla titlana sem hann hefur unnið.“