Útlit fyrir tíðindalítið veður á landinu Atli Ísleifsson skrifar 4. janúar 2023 07:31 Hlauparar í Elliðaárdal í Reykjavík. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir tíðindalítið veður á landinu í dag. Víða má reikna með fremur hægum vindi og björtu veðri með köflum, en líkur eru á stöku éljum við vesturströndina.
Á vef Veðurstofunnar segir að austantil á landinu verði þó norðvestan kaldi eða strekkingur og þar megi búast við lítilsháttar snjókomu fram yfir hádegi. Frost verður yfirleitt á bilinu núll til tólf stig, mildast austast á landinu. „Austlæg eða breytileg átt 5-13 m/s á morgun og þurrt að kalla, en sunnantil á landinu má búast við dálitlum éljum og einnig austanlands annað kvöld. Áfram svalt í veðri,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Austlæg eða breytileg átt 3-10 m/s, en 8-13 við suðausturströndina. Dálítil él sunnantil og einnig austanlands um kvöldið, annars þurrt að kalla. Frost 0 til 12 stig, mildast syðst. Á föstudag: Norðaustan 5-13 og dálítil él, en þurrt um landið sunnanvert. Bætir í vind um kvöldið. Hiti breytist lítið. Á laugardag: Norðaustan 10-18 og slydda eða snjókoma með köflum, en þurrt suðvestanlands. Hlýnar í veðri. Á sunnudag: Ákveðin norðaustanátt og snjókoma eða slydda, en úrkomuminna sunnanlands. Hiti kringum frostmark. Á mánudag: Norðaustlæg átt og snjókoma með köflum, en þurrt að kalla sunnan heiða. Kólnar heldur. Á þriðjudag: Útlit fyrir austan- og norðaustanátt með snjókomu eða éljum norðan- og vestanlands.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira