Útlit fyrir áframhaldandi umhleypingar út vikuna Atli Ísleifsson skrifar 24. janúar 2023 07:23 Fólk á gönguskíðum á Hvaleyrarvatni. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir suðvestan fimm til þrettán metrum á sekúndu með skúrum í dag, en þegar líður á daginn léttir til austanlands. Reikna má með að hiti verði á bilinu tvö til sjö stig.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að í kvöld og í nótt snúist í norðvestan tíu til átján metra á sekúndu með slydduéljum eða éljum, einkum á vestan- og norðanverðu landinu. Það kólni í veðri með norðanáttinni. „Á morgun lægir, birtir víða upp og vægt frost. Það léttir fyrst til vestan- og sunnanlands í fyrramálið og síðdegis um landið norðaustanvert. Strax annað kvöld er síðan vaxandi sunnanvindur á landinu og það má búast við hlýindum og rigningu á fimmtudaginn. Síðan er útlit fyrir áframhaldandi umhleypingar út vikuna,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðvestan 8-15 m/s og él í fyrstu á Norður- og Austurlandi, en síðan hægari vindur og bjart veður. Frost 0 til 5 stig. Vaxandi sunnanátt á vestanverðu landinu um kvöldið með slyddu eða rigningu og hlýnar. Á fimmtudag: Sunnan 10-18 og rigning, einkum sunnan- og vestanlands. Hiti 5 til 12 stig. Hvöss suðvestanátt með éljum og kólnandi veðri um kvöldið. Á föstudag: Hvöss vestanátt og él, en þurrt austanlands. Hiti um eða undir frostmarki. Á laugardag: Suðlæg átt með slyddu eða snjókomu, síðar talsverð rigning sunnan- og vestanlands. Hlýnandi veður. Á sunnudag: Útlit fyrir vestan- og síðar norðvestanátt með éljum og kólnar aftur.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira