Línan var frumsýnd á tískuvikunni í París og ofurfyrirsætur gengu tískupallana á meðan áhrifavaldar og stórstjörnur á borð við Kylie Jenner og Doja Cat sátu á fremsta bekk. Kylie skartaði svörtum kjól með ljónshöfuð á bringunni og Doja Cat var þakin þrjátíu þúsund rauðum kristöllum.
Doja Cat s #ParisFashionWeek look took 4 hours to create and involved covering her in 30,000 Swarovski crystals, Pat McGrath reveals. pic.twitter.com/06WQTlzpsr
— Pop Crave (@PopCrave) January 23, 2023
Raunverulegt gervi
Vert er að taka fram að þrátt fyrir að virðast raunveruleg voru þessi höfuð blessunarlega búin til af tískuhúsinu og ekkert dýr var skaðað í ferlinu. Roseberry og teymið hans lögðu mikla vinnu í að hanna skúlptúrana sem mynduðu höfuðin og var hugað að hverju einasta smáatriði.

Nýju flíkurnar voru með sanni framúrstefnulegar og raunveruleg gervihöfuð dýra á borð við ljón, hlébarða og úlf vöktu hvað mesta athygli þar sem þau héngu utan á hátískuflíkum en fyrir sýninguna hafði Roseberry sagt: „Ekkert er eins og það sýnist“.

Guðdómlegur gleðileikur
Tískuhúsið Schiaparelli hefur í gegnum tíðina verið þekkt fyrir að sjokkera. Fyrir þessa sýningu sótti Roseberry innblástur í sjálfsefa og ákveðið helvíti frá Inferno, sem er fyrsti hluti ritsafnsins Hinn guðdómlegi gleðileikur (e. Divine Comedy) eftir skáldið Dante.
Í samtali við Vogue segir Roseberry að dýrin hafi verið bókstafleg skírskotun í ritið, þar sem Dante skrifar um að þurfa að mæta ljóni, hlébarða og kvenúlfi sem öll standa fyrir ólíka hluti.

Samþykki frá PETA
Dýraverndarsamtökin PETA hafa löngum talað gegn notkun á feldi og leðri í tískubransanum en samkvæmt fjölmiðlinum TMZ er Ingrid Newkirk, forseti samtakanna, aðdáandi nýju línu Schiaparelli. Segir hún að þetta geti vonandi spornað gegn veiðiþjófum, sem til dæmis slátra ljónum til að uppstoppa þau og selja.
„Þessi stórkostlega nýstárlegu þrívíddar dýrahöfuð sýna að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi,“ er haft eftir Newkirk.
Sjón er sögu ríkari en hér má sjá nokkrar vel valdar myndir frá sýningunni til viðbótar:




