Guðni A. Jóhannesson er látinn Atli Ísleifsson skrifar 31. janúar 2023 12:25 Guðni A. Jóhannesson var orkumálastjóri á árunum 2008 til 2021. Aðsend Dr. Guðni A. Jóhannesson, fyrrverandi orkumálastjóri, lést á Landskotsspítala í gær, 71 árs að aldri. Banamein hans var krabbamein. Hann gegndi embætti orkumálastjóra á árunum 2008 til 2021.
Í tilkynningu kemur fram að Guðni Albert hafi fæðst í Reykjavík 27. nóvember 1951, verið sonur hjónanna Aldísar Jónu Ásmundsdóttur húsmóður og Jóhannesar Guðnasonar eldavélasmiðs. „Hann lauk stúdentsprófi frá eðlisfræðideild Menntaskólans í Reykjavík árið 1971, tók fyrrihlutanám í eðlisverkfræði í tvö ár við Háskóla Íslands og lauk náminu í Lundi í Svíþjóð. Þar lauk hann svo doktorsnámi í byggingareðlisfræði árið 1981. Guðni starfaði sem dósent eftir að doktorsnáminu lauk, en heimfluttur hóf hann störf hjá Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins þar til hann stofnaði eigin verkfræðistofu. Árið 1990 fékk Guðni prófessorsstöðu við Konunglega verkfræðiháskólann í Stokkhólmi og gegndi þeirri stöðu í 17 ár, allt til loka árs 2007. Í ársbyrjun 2008 tók hann við stöðu orkumálastjóra og gegndi henni í 13 ár, eða til ársins 2021. Eftirlifandi eiginkona Guðna er Bryndís Sverrisdóttir safnafræðingur. Börn þeirra eru Gunnhildur Margrét, læknir í Gautaborg og Sverrir Páll, leikari í Stokkhólmi. Barnabörnin eru fimm,“ segir í tilkynningunni.
Andlát Orkumál Stjórnsýsla Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira