„Það kom tiltölulega fljótt í ljós að það var enginn hjartsláttur“ Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 31. janúar 2023 17:44 Í myndskeiðinu deila ræða hjónin hvað tók við eftir fæðinguna og val þeirra um að hafa kistulagningu og jarðarför – og hvað það skipti þau miklu máli, 25 árum seinna, að Sturla Karl sé enn hluti af fjölskyldunni. Skjáskot/Youtube „Sorg, allvega eins og ég upplifi hana, fer svo mikið í að hugsa um hvað hefði orðið. Hvað tækifæri við áttum varðandi framtíðina. Og þó við hefðum aldrei fengið að halda á honum lifandi, þá vorum við byrjuð að plana, við vorum búin að sjá fyrir okkur í höfðinu hvernig lífið yrði. Alls konar væntingar og vonir, sem urðu svo ekki,“ segir Jón Þór Sturluson.
Jón Þór og eiginkona hans, Anna Sigrún Baldursdóttir gengu í gegnum erfitt sorgarferli þegar sonur þeirra Sturla Karl lést í móðurkviði á 32. viku meðgöngu. Jón Þór og Anna eru á meðal þeirra foreldra sem deila reynslusögu sinni í röð myndskeiða á vegum Gleym mér ei – styrktarfélags til stuðnings við foreldra sem missa barn á meðgöngu og í/eftir fæðingu. Í myndskeiðinu ræða hjónin hvað tók við eftir fæðinguna og val þeirra um að hafa kistulagningu og jarðarför – og hvað það skipti þau miklu máli, 25 árum seinna, að Sturla Karl sé enn hluti af fjölskyldunni. Enginn hjartsláttur „Þetta var auðvitað mjög dramatísk reynsla. Við vorum stödd í heimabæ okkar, á svokölluðum Dönskum dögum í Stykkishólmi þegar Anna fer að finna fyrir rosalega vondri líðan í móðurkviði. Við drífum okkur á sjúkrahúsið. Það er mjög skrítið að rifja það upp, því fagfólkið þar, það náttúrulega vissi hvað var að gerast. Það sem við óttuðumst en vonuðum að væri ekki satt. Það kom tiltölulega fljótt í ljós að það var enginn hjartsláttur. Ómskoðun sýndi enga hreyfingu. Þar fengum við þær upplýsingar að hann væri dáinn,“ segir Jón Þór. Þetta var á 32. viku meðgöngunnar. „Svo tók náttúrulega svolítinn tíma að koma fæðingunni af stað, en það var strax farið í það. Og svo fæddist hann, og við vorum þarna,“ rifjar Anna upp. Þau hjónin áttu stund með syni sínum í kjölfarið þar sem þau tóku myndir og fengu fótspor, hárlokk og handaför til minningar. „Ég vann sem hjúkrunarfræðingur á gjörgæslunni á þessum tíma og ég man eftir því að það kom einn hjúkrunarfræðingur sem starfaði með mér þar og hefur alltaf skipað svolítið mikinn sess í hjarta mínu,“ segir Anna. Þau Jón Þór láta afar vel af þjónustunni sem þau fengu á spítalanum, frá ljósmæðrum og félagsráðgjafa. Presturinn á spítalanum reyndist þeim einnig afskaplega vel. „Það verður að viðurkennast að ég er ekki trúaðasti maður á landinu. En það situr í mér hvað þessi stofnun hjálpaði okkur. Á þessum tíma var það kannski svona arðbærasta hjálpartólið, kirkjan,“ segir Jón Þór. Allt telur Þau segjast hafa fundið fyrir því strax að þau vildu hafa kistulagningu og jarðarför, og fjölskylda og vinir reyndust þeim þá afar vel. Sturla Karl fékk leiði við hlið ömmu sinnar og afa og fjölskyldan heimsækir leiðið reglulega. Þá segir Anna að Sturla Karl hafi alltaf verið talinn hluti af fjölskyldunni. „Þegar við urðum fimmtug gáfu foreldrar mínir og systur okkur svanafjölskyldu. Þá voru það auðvitað tveir svanir og þrír ungar. Þetta bara skiptir svo miklu máli. 25 árum seinna. Þetta telur allt inn.“ Jón Þór og Anna bjuggu í Svíþjóð þegar næsta barn þeirra fæddist, sem er eldri dóttir þeirra. Anna segir það hafa skipt miklu máli á sínum tíma að starfsfólkið í mæðraeftirlitinu vissi sögu þeirra og sýndi þeim mikinn skilning. „Ég hefði getað mætt þar á hverjum degi í mæðraeftirlit eða sónar, hvað sem ég vildi, ég mátti alltaf koma, bara alltaf. Það var alltaf opið hús. Mér fannst það frábært,“ segir hún og bætir við að upplifunin hafi verið svipuð þegar yngri dóttir þeirra fæddist á Íslandi. „Þær hjálpa okkur, af því að hann er svo mikill hluti af þeim, þó þær hafi aldrei upplifað hann öðruvísi en í gegnum okkur. Þannig að það er bara æðislegt. “ Hér má finna fleiri myndskeið á vegum Gleym mér ei þar sem foreldrar deila sögu sinni af barnsmissi í fæðingu eða á meðgöngu. Vilja að minning barna sinna lifi Gleym mér ei styrktarfélag fagnar um þessar mundir tíu ára afmæli. Félagið var stofnað árið 2013 af Önnu Lísu Björnsdóttur, Hrafnhildi Hafsteinsdóttur og Þórunni Pálsdóttur. Reynsla af missi á meðgöngu leiddi þær saman með það að markmiði að styðja fjölskyldur sem standa í þessum erfiðu sporum. Nú þegar 10 ár eru liðin frá stofnun félagsins verður efnt til ráðstefnu um missi í barneignarferlinu. Ráðstefnan er ætluð heilbrigðisstarfsfólki og haldin í samstarfi við Háskóla Íslands, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Landspítala og Ljósmæðrafélag Íslands. Félagið vill leggja sitt af mörkum til forvarnastarfs ásamt því að auka þekkingu og skilning þeirra fagaðila og starfsfólks sem annast fjölskyldur sem missa á meðgöngu, í fæðingu og á fyrstu mánuðum lífs. Myndskeiðin þar sem foreldrar deila sögum sínum voru tekin upp á síðasta ári og birt nú á dögunum. Að sögn Ingunnar Sifjar Höskuldsdóttur hjá Gleym mér ei er tilgangur myndskeiðanna tvíþættur. „Í fyrsta lagi hefur það sýnt sig að reynslusögur annarra foreldra hjálpa hvað mest þegar fólk stendur frammi fyrir því verkefni að læra að lifa með missi barns. Það gefur von og styrk að spegla sig í tilfinningum annarra og eignast fyrirmyndir í því sem framundan er. Þessar sögur hjálpa að auki oft foreldrum af fyrri kynslóðum sem fengu ekki að vinna úr missinum á sínum tíma. Í öðru lagi er mikilvægt að félagið vinni að því að auka rýmið í samfélaginu fyrir sorgina sem fylgir missi eins og þessum. Skilningur þeirra sem ekki hafa staðið í þessum sporum er mikilvægur og dýrmætur. Við trúum því að sorg sem fær það pláss sem hún þarf fái miklu frekar heilbrigða úrvinnslu.“ Ingunn segir Gleym mér ei hafa notið mikils stuðnings og velvildar alveg frá fyrsta degi. „Það hefur alltaf gengið vel að fá fólkið okkar til þess að deila reynslu sinni og við gerð myndbandanna var engin undantekning þar á. Flestum foreldrum er afar mikilvægt að minning barna þeirra lifi og það að deila sögunum þeirra á þennan hátt er einn þáttur í því.“ Heimasíða Gleym mér ei. Facebooksíða Gley mér ei. Instagramsíða Gley mér ei.
Börn og uppeldi Fjölskyldumál Tengdar fréttir „Mér fannst þetta einhvern veginn breyta í mér erfðaefninu“ „Mér fannst einhver veginn eins og við kæmust aldrei í gengum þessa nótt. Fyrstu mínúturnar og klukkutímana þá er maður er bara einhvern veginn að reyna að lifa af,“ segir Freyr Eyjólfsson. Freyr og Hólmfríður Anna Baldursdóttir eiginkona hans upplifðu gífurlegt áfall þegar sonur þeirra Eldar fæddist andvana, á 34. viku meðgöngu. 28. janúar 2023 08:00 Mest lesið Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Erlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Grímuskylda á Landspítalanum Innlent Alvarlegt bílslys í Öræfum Innlent Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Innlent Strætó rann á bíl og ruslaskýli Innlent Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Erlent Fleiri fréttir Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Sjá meira
„Mér fannst þetta einhvern veginn breyta í mér erfðaefninu“ „Mér fannst einhver veginn eins og við kæmust aldrei í gengum þessa nótt. Fyrstu mínúturnar og klukkutímana þá er maður er bara einhvern veginn að reyna að lifa af,“ segir Freyr Eyjólfsson. Freyr og Hólmfríður Anna Baldursdóttir eiginkona hans upplifðu gífurlegt áfall þegar sonur þeirra Eldar fæddist andvana, á 34. viku meðgöngu. 28. janúar 2023 08:00