Fram kemur í tilkynningu frá Eflingu að um sé að ræða friðsamleg mótmæli þar sem koma eigi með skilti, syngja og halda ræður. Mikill fjöldi fólks er mættur til mótmælanna og má með sanni segja að Tjarnargata sé stöppuð af Eflingarfólki.

Viðar Þorsteinsson fræðslu- og félagsmálastjóri Eflingar sagði á vel sóttum fundi Eflingarliða í Iðnó í morgun að stemningin sé geggjuð.
„Það er frábær mæting, frábær stemning búin að vera alveg síðan verkfallið hófst. Bara alveg geggjað.“
Ríkisstjórnin hefur í morgun verið á sínum vikulega fundi í ráðherrabústaðnum sem kláraðist rétt fyrir klukkan ellefu. Eflingarliðar reyndu að stöðva Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, þegar hún keyrði af fundinum.
„Þið höfðuð tækifæri og hafið enn tækifæri til að sýna pólitískt hugrekki, pólitíska getu til að koma böndum á þennan svívirðilega húsnæðismarkað sem étur upp öll laun Eflingarfólksins sem þar er fast. Helmingur Eflingarfólks er fastur á leigumarkaðnum sem þið berið ábyrgð á. Það er ykkar skylda að koma á leiguþaki,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar á mótmælunum.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fagnaði mótmælendum.
„Þau eru að vekja athygli á sínum kröfum, sinni baráttu og sínum verkföllum er algjörlega sjálfsagt mál enda er hér frjálst samfélag og öllum frjálst að koma sínum kröfum á framfæri,“ segir Katrín í samtali við fréttastofu.
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra var aðeins hvassari í garð Eflingarfólks.
„Það væri gott ef þeir ættu fundi með viðsemjendum sínum, það hefur verið skortur á því undanfarið,“ segir Bjarni.
„Almennt hefur maður áhyggjur af því þegar kjaralotur enda í átökum, hörðum átökum. Ég held það sé almennt best þegar við komumst hjá því að láta það enda þannig.“
Því næst hélt Bjarni út úr Ráðherrabústaðnum þar sem Sólveig Anna og félagar tóku á móti honum með hrópum og köllum.