Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Karli Reyni

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
karl

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Karli Reyni Guðfinnssyni, 85 ára karlmanni. Karl Reynir sást síðast er hann fór frá heimili sínu að Keldulandi 13 um hádegisbilið í dag. Karl Reynir á við minnisglöp að stríða.

Karl Reynir er talinn vera á rauð/gráum Subaru Forester, árgerð 2004, með skráningarnúmerinu PE-477. Hann er símalaus og er ekki á samskiptamiðlum.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Karls Reynis og eða hafa séð bifreið hans eru vinsamlegast beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×