Innlent

Styður yfir­lýsingu mið­stjórnar ASÍ

Sigurður Orri Kristjánsson skrifar
Kristján segist munu mæta til verkfallsvörslu þegar kallið kemur.
Kristján segist munu mæta til verkfallsvörslu þegar kallið kemur. Vísir/Arnar

Forseti ASÍ segir havaríið við ráðherrabústaðinn í gær ekki tilefni yfirlýsingar sem miðstjórn ASÍ gaf út í gær þar sem orðræðan í kjaradeilu SA og Eflingar er gagnrýnd. Hann segist styðja baráttu Eflingar og er tilbúinn að sinna verkfallsvörslu þegar kallið kemur.

Um miðjan dag í gær sendi miðstjórn ASÍ frá sér ályktun þar sem Alþýðusambandið harmar neikvæða og ofstækiskennda orðræðu í tengslum við kjaraviðræður Eflingar og samtaka Atvinnulífsins. Hvatti miðstjórnin hlutaðeigandi til stillingar og varar við því að kjaradeila sé túlkuð á þann veg að réttmætt sé að ausa fúkyrðum yfir þá sem koma að viðræðunum.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar sendi í kjölfarið erindi á forseta ASÍ og krafði hann svara um hvort þessari ályktun væri beint að Eflingu, en talsverð harka var í orðum Eflingarliða eftir ríkisstjórnarfund í gær þar sem aðsúgur var gerður að ráðherrum á leið af fundi.

Kristján Þórður Snæbjarnarson forseti ASÍ segir ályktun miðstjórnar ekki viðbragð við baráttu Eflingar.

„Yfirlýsingin var gerð á miðstjórnarfundi, eða semsagt vinnufundi miðstjornar á miðvikudaginn og var ekki sett saman gegn samninganefnd Eflingar heldur fyrst og fremst vegna þeirrar stöðu sem hefur verið á undanförnum mánuðum í samfélaginu og svona þeirrar orðræðu. En síðan birtist hún á þessum tíma í gær.“

Kristján segist hafa stutt yfirlýsinguna.

„Já. ég studdi yfirlýsinguna eins og svosem allir gerðu.“

Kristján sagði í yfirlýsingu sinni að hann sé tilbúinn að taka þátt í verkfallsvörslu.

„Eftir samtöl mín við Sólveigu að undanförnu þá auðvitað bauð ég fram aðstoð mína í þeim málum sem mögulegt er. Síðan er kallað eftir því og mér er boðið að taka þátt í verkfallsvörslu og stuðningi þar. Ég að sjálfsögðu mun aðstoða eins og ég mögulega get og taka þátt í þessari baráttu með mínum félögum.“

Hann bíður bara eftir að kallið komi.

„Ég veit ekki hvort það sé í dag en ég mun fá skilaboð um þegar verkfallsvarsla verður næst og mun leggja mitt af mörkum að mæta ef ég mögulega get.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×