Innlent

Lögreglan leitaði að dansandi manni á Miklubraut

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Maðurinn á að hafa dansað með heyrnartól á Miklubraut.
Maðurinn á að hafa dansað með heyrnartól á Miklubraut. vísir/egill

Lögreglu á höfuðborgarsvæði var tilkynnt um dansandi mann með heyrnartól á Miklubraut í dag. Sá var farinn af vettvangi þegar lögregla mætti í leit að manninum.

Þessu greinir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sjálf frá í fréttapósti þar sem greint er frá því fréttnæmasta sem lögregla hefur fengist við í dag. 

Auk dansandi mannsins kemur fram að þremur hafi verið vísað út úr húsi á Hverfisgötu sem hafði þar tekið sér húsaskjól án leyfis.

Þá var maður handtekinn við innbrot í Jórufelli. „Þarna var aðili gómaður við brjóta rúðu,“ segir í tilkynningu lögreglu. Maðurinn hafi í skýrslutöku sagst ekki muna eftir atvikinu. 

Þá segir að töluvert hafi verið um akstur undir áhrifum áfengis og vímuefna. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×