Innlent

Lög­regla eltist við bif­reiða-, ferða­tösku- og stál­plötu­þjófa

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Tveir menn voru staðnir að því að stela stálplötum.
Tveir menn voru staðnir að því að stela stálplötum. Vísir/Vilhelm

Tveir voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gær þegar lögreglu barst tilkynning um ferðir bifreiðar sem hafði áður verið tilkynnt stolin. Búið var að skipta um skráningarnúmer á bílnum og ökumaður og farþegi gista nú fangageymslu.

Lögregla stöðvaði marga í umferðinni í gærkvöldi og nótt grunaða um akstur undir áhrifum vímuefna. Þá var tilkynnt um þjófnað á ferðatöskum á gistiheimili í miðborginni og óvelkominn einstakling á hóteli í póstnúmerinu 105.

Í póstnúmerinu 103, sem meðal annars nær yfir Kringluna, var tilkynnt um þjófnað í verslunarmiðstöð en grunuðu reyndust undir sakhæfisaldri og var málið unnið í samráði við foreldra og barnaverndaryfirvöldum gert viðvart.

Tilkynnt  var um grunsamlegar mannaferðir í Hafnarfirði en engar frekari upplýsingar fylgja um atvikið í yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar. Þá var tilkynnt um ölvaðan einstaling sem virtist ekki geta haldið sér uppréttum á göngustíg og var honum ekið heim.

Í póstnúmerinu 221 voru tveir staðnir að þjófnaði á stálplötum. Þeir voru handteknir og vistaðir í fangageymslu vegna rannsóknarhagsmuna.

Öðrum ölvuðum einstakling sem var á gangi í póstnúmerinu 112 var ekið til síns heima og þá barst tilkynning um ölvaðan einstakling í stigagangi í Kópavogi. Í Kópavogi var einnig tilkynnt um einstakling sem var ógnað af tveimur öðrum með hnífi. Höfðu þeir af honum fjármuni. Málið er í rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×