Diljá vann Söngvakeppnina í kvöld og verður því fulltrúi okkar Íslendinga í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, sem haldin verður í Liverpool á Englandi í maí.
Netverjar eru upp til hópa ánægðir með val þjóðarinnar á framlagi til keppninnar í ár, en það hefur ekki alltaf verið raunin.
Háskóli Íslands, þar sem Diljá stundar nám í sjúkraþjálfun, var með þeim fyrstu til þess að óska Diljá til hamingju með sigurinn. Þá nýtti skólinn tækifærið og benti henni á að hægt er að taka fjarpróf víða í heiminum.
Til hamingju, Diljá sjúkraþjálfunarnemi. Við minnum á að hægt er að taka fjarpróf víða í heiminum. #12stig pic.twitter.com/NwALNOTDAw
— Háskóli Íslands (@Haskoli_Islands) March 4, 2023
Dagur B. Eggertsson, tók undir með HÍ og óskaði Diljá til hamingju.
Vel get @Haskoli_Islands - og til hamingju Diljá! #12stig https://t.co/lxzNO0alGy
— dagur@reykjavik.is (@Dagurb) March 4, 2023
Sema Erla Serdar líkir Diljá við eina af goðsögnum Eurovisionsögunnar.
Loreen komin með harða samkeppni! #12stig
— Sema Erla (@semaerla) March 4, 2023
Ragnar Eyþórsson kvikmyndargerðarmaður virðist ekki geta beðið eftir flutningi Diljár í Liverpool.
Síðasti flutningurinn var enn betri... get rétt ímyndað mér Powerinn í púlaraborg#12stig
— Ragnar Eyþórsson (@raggiey) March 4, 2023
Bragi Páll Sigurðarson rithöfundur spyr hvort kosningin í kvöld hafi verið sú fyrsta sem eldri kynslóðin tapar hér á landi.
Fyrsta sinn sem boomer Ísland tapar kosningum? #12stig
— Bragi Páll (@BragiPall) March 4, 2023
Vilhelm Neto, leikari og uppistandari, sýndi stuðning sinn til Diljár í verki með því að kjósa hana. Hann veit hvernig íslenska þjóðin getur verið þegar kemur að einvíginu alræmda.
Ég að hringja í 900-9904 vitandi alveg hvernig Ísland er þegar það kemur að einvíginu #12stig pic.twitter.com/wWytmrmO1g
— Vilhelm Neto (@VilhelmNeto) March 4, 2023
KSÍ segir Eurovision að undirbúa sig fyrir komu Diljár. Hún verði tilbúin.
Power up @Eurovision !
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) March 4, 2023
Diljá will be ready ! #12stig pic.twitter.com/94l2xmMTdb
Hér að neðan má svo sjá viðbrögð annarra ánægðra netverja:
Guð er til #12stig
— Þórdís Jónsdóttir (@tordis97) March 4, 2023
Ég er svo stolt ein, grenjandi, veik uppi í sófa.
— (G)ella María (@ellamaaria1) March 4, 2023
Diljá, þú fallega drottning #12stig
Ég er enginn sérfræðingur en þetta var hands down besta Söngvakeppnin til þessa! #12stig.
— Viktor Klimaszewski (@vklimaszewski) March 4, 2023
Elska hvað þessi þjóð er Diljákvæð! #12stig
— Diljá Ámundadóttir Zoëga (@DiljaA) March 4, 2023
Einu sinni átti ég risastóran jakka með ermapúðum og of stórar buxur með fellingum að framan. Mamma saumaði á mig og ég var svaka smart. Minn tími er kominn #12stig
— Bylgja Valtýsdóttir (@eldhestur) March 4, 2023
TIL HAMINGJU DILJÁ!!! #12stig #Songvakeppnin #Iceland #Eurovision pic.twitter.com/HPeFLD6v4n
— I STAND WITH UKRAINE (@heidos777) March 4, 2023
AHHH er svo glöð að Diljá vann! Og fegin að OK hafi tapað #12stig
— Inga, MSc. (@irg19) March 4, 2023
MICHELIN STJÖRNU Á DILL JÁ #12STIG
— Gunnar Andreas Kristinsson (@GunnarAndreasK) March 4, 2023
Í alvöru, sjáið hana! #12stig pic.twitter.com/GEZKvjWDgW
— Iðunn Garðarsdóttir (@Idunn_G) March 4, 2023
Diljá mun alveg örugglega standa sig með prýði á Anfield í vor #12stig
— Hilmar Æ Þórðarson (@drhilmar) March 4, 2023