Innlent

Gat ekki borgað fyrir gistingu á hóteli og átti ekki í önnur hús að venda

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Flest verkefni lögreglu í gærkvöldi og nótt voru umferðartengd.
Flest verkefni lögreglu í gærkvöldi og nótt voru umferðartengd. Vísir/Vilhelm

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning frá hótelstarfsmönnum í borginni í gær vegna einstaklings í annarlegu ástandi sem var að reyna að greiða fyrir gistingu án árangurs.

Var þess óskað að einstaklingnum yrði vísað á dyr og fór lögregla á vettvang og ræddi við viðkomandi. Hann reyndist ekki eiga í nein hús að venda og fékk að gista í fangageymslu lögreglu vegna veðurs.

Lögreglu barst einnig tilkynning um innbrot í Garðabæ þar sem fjármunum var stolið og er það mál í rannsókn. Flest verkefni lögreglu tengdust hins vegar umferðinni en tveir voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum og einn fyrir að nota farsíma.

Þá var tilkynnt um eitt tilvik þar sem ekið var á aðra bifreið og stungið af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×