Frumsýning á afmælismyndbandi söngleiksins Níu líf Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 8. mars 2023 12:09 Söng- og leikkonan Elín Hall fer með hlutverk Reiða Bubba í sýningunni Níu líf. skjáskot Vísir frumsýnir hér glænýtt myndband úr sýningunni Níu líf í tilefni þriggja ára afmælis þessarar farsælu sýningar.
Núna um helgina eru þrjú ár síðan sýningin Níu líf var frumsýnd í Borgarleikhúsinu og hefur hún notið gríðarlegra vinsælda, svo vægt sé til orða tekið en sýningin hefur verið sýnd 165 sinnum. Þá hafa rúmlega níutíu þúsund leikhúsgestir mætt á sýninguna og hlegið og grátið með þjóðargerseminni Bubba Morthens. Bubbi Morthens er samofinn þjóðarsálinni í öllum sínum birtingarmyndum: Stjarnan sem rís úr slorinu; fyrst sem málsvari verkalýðsins, svo alþýðusöngvari þjóðarinnar, þá atómpönkari og gúanórokkari sem breytist í ballöðu-poppara sem syngur með stórsveitum. Skoðanaglaði gasprarinn, skrifblinda ljóðskáldið, fíkilinn sem reis upp, kvennamaðurinn og sá sem elskar aðeins eina konu, Kúbverjinn og Hollywood-víkingurinn, veiðimaðurinn, friðarsinninn og boxarinn. Sögur Bubba Morthens eru sögur okkar allra; sögur Íslands. Halldóra Geirharðsdóttir hlaut Grímuverðlaun bæði sem leikkona og söngvari ársins fyrir frammistöðu sína í sýningunni.Borgarleikhúsið Björn Stefánsson fer á kostum í sýningunni.Borgarleikhúsið Í tilefni af þriggja ára afmæli sýningarinnar er lagið Er nauðsynlegt að skjóta þá? eftir Bubba Morthens komið út í flutningi söng- og leikkonunnar Elínar Hall. Elín steig nýlega inn í sýninguna og fer með hlutverk Reiða Bubba. Stjórn upptöku lagsins og útsetning er í höndum Guðmundar Óskars og myndband gerði Elmar Þórarinsson. Hljómsveitin í leiksýningunni spilar undir. Klippa: Er nauðsynlegt að skjóta þá? - Elín Hall
Leikhús Tónlist Tengdar fréttir „Það var annaðhvort að kýla á þetta eða fella niður sýninguna“ Leikarinn Árni Þór Lárusson hafði nokkra klukkutíma til að undirbúa sig fyrir hlutverk Utangarðs Bubba í söngleiknum Níu líf á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu. 30. nóvember 2022 12:00 Fjórtán frumsýningar í Borgarleikhúsinu Þeir tvö hundruð starfsmenn, sem vinna í Borgarleikhúsinu munu hafa meira en nóg að gera í vetur því þar verða fjórtán leikrit frumsýnd, auk verka, sem hafa verið i gangi eins og Emil í Kattholti og Níu líf. Leikhússtjóri Borgarleikhússins segir leikhúsið ekki vera í samkeppni við Þjóðleikhúsið né önnur leikhús. 4. september 2022 14:10 Kveinuðu þegar Bubbi lofaði tíu árum í viðbót Sérstök hátíðarsýning á söngleiknum Níu líf fór fram í Borgarleikhúsinu í kvöld í tilefni af 66 ára afmæli Bubba Morthens. Tónlistarmaðurinn segir góða tilfinningu fylgja því að vera viðstaddur hana á þessum tímamótum en Bubbi hefur horft á hverja einustu sýningu söngleiksins sem hefur notið mikilla vinsælda. 6. júní 2022 22:48 Bubba-sýningin verður frumsýnd í kvöld Þjóðleikhúsið lokar en Borgarleikhúsið heldur sínu striki 13. mars 2020 13:09 „Hausinn minn er eina heimilið sem ég mun búa í alla ævi“ Leikkonan Elín Sif Hall var að stíga sín fyrstu skref í Borgarleikhúsinu í leikritinu 9 líf en hún vakti meðal annars athygli fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Lof mér að falla fyrir nokkrum árum. Hún lýsir sér sem listamanni í mótun sem elskar að kaupa notuð föt og drekka kaffi. Auk þess reynir hún að finna innblástur í öllu en sköpunargleðin nærir andlega heilsu hennar hvað mest. Elín Hall er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum. 3. september 2022 11:30 Mest lesið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira
„Það var annaðhvort að kýla á þetta eða fella niður sýninguna“ Leikarinn Árni Þór Lárusson hafði nokkra klukkutíma til að undirbúa sig fyrir hlutverk Utangarðs Bubba í söngleiknum Níu líf á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu. 30. nóvember 2022 12:00
Fjórtán frumsýningar í Borgarleikhúsinu Þeir tvö hundruð starfsmenn, sem vinna í Borgarleikhúsinu munu hafa meira en nóg að gera í vetur því þar verða fjórtán leikrit frumsýnd, auk verka, sem hafa verið i gangi eins og Emil í Kattholti og Níu líf. Leikhússtjóri Borgarleikhússins segir leikhúsið ekki vera í samkeppni við Þjóðleikhúsið né önnur leikhús. 4. september 2022 14:10
Kveinuðu þegar Bubbi lofaði tíu árum í viðbót Sérstök hátíðarsýning á söngleiknum Níu líf fór fram í Borgarleikhúsinu í kvöld í tilefni af 66 ára afmæli Bubba Morthens. Tónlistarmaðurinn segir góða tilfinningu fylgja því að vera viðstaddur hana á þessum tímamótum en Bubbi hefur horft á hverja einustu sýningu söngleiksins sem hefur notið mikilla vinsælda. 6. júní 2022 22:48
Bubba-sýningin verður frumsýnd í kvöld Þjóðleikhúsið lokar en Borgarleikhúsið heldur sínu striki 13. mars 2020 13:09
„Hausinn minn er eina heimilið sem ég mun búa í alla ævi“ Leikkonan Elín Sif Hall var að stíga sín fyrstu skref í Borgarleikhúsinu í leikritinu 9 líf en hún vakti meðal annars athygli fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Lof mér að falla fyrir nokkrum árum. Hún lýsir sér sem listamanni í mótun sem elskar að kaupa notuð föt og drekka kaffi. Auk þess reynir hún að finna innblástur í öllu en sköpunargleðin nærir andlega heilsu hennar hvað mest. Elín Hall er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum. 3. september 2022 11:30