Prjónahátíðin, sem haldin er á Blönduósi er alltaf aðra helgina í júní. Markmið hátíðarinnar hefur frá uppafi verið að sameina prjónafólk og skapa því vettvang til þess að hittast og miðla prjónasögum, nýjum hugmyndum og aðferðum, gömlum hefðum og síðast en ekki síst prjónagleðinni í öllum sínum fjölbreytileika.
Pétur Arason, sveitarstjóri Húnabyggðar segir prjónahátíðina mjög merkilega hátíð.
„Við erum þannig séð búin að sprengja þessa hátíð utan af okkur því við höfum bara ekki fleiri gistirými. Það er eitt af því, sem við þurfum að byggja upp til að geta haldið þennan viðburð á sómasamlegan hátt,” segir Pétur og bætir við.
„Eins og við vitum þá sprakk þessi prjónaáhugi út eins og blóm í Covid en hann hefur náttúrulega verið hjá íslensku þjóðinni í gegnum tíðina. Að prjóna er orðið áhugamál fjölda fólks þannig að þetta er bara mjög spennandi verkefni að vinna með.”

Textílmiðstöð Ísland, sem er til húsa í gamla Kvennaskólanum á Blönduósi er að gera mjög merkilega hluti en miðstöðin er ætluð listafólki, fræðafólki og hönnuðum sem vinna með textíl. Textílmiðstöðin kemur líka alltaf myndarlega að prjónahátíðinni.
„Blönduós er á kortinu á meðal nokkra stórborga í Evrópu vegna samstarfs um textíl . Ég tók nú sjálfur þátt í vinnustofu núna í haust þar sem voru aðilar frá Mílanó, París, Kaupmannahöfn og öðrum borgum í Evrópu og það var svolítið skondið að sjá svo Blönduós við hliðina á öllum þessum stórborgum en þetta er út af því að Blönduós er orðið þekkt út af Textílmiðstöðinni fyrir þessa vinnu og prjónahátíðin,” segir Pétur.
