Í fréttatilkynningu segir:
„Markmið verðlaunanna er að heiðra íslenska myndlistarmenn eða myndlistarmenn sem búsettir eru á Íslandi og vekja athygli á því sem vel er gert á sviði myndlistar en jafnframt veita einstaka myndlistarmönnum mikilvæga viðurkenningu og hvetja til nýrrar listsköpunar. Myndlistarráð stendur að baki myndlistarverðlaunanna.“
Glæsilegt samansafn listamanna fékk tilnefningar í ár í flokki „Myndlistarmaður ársins“ og „Hvatningarverðlaun“. Opið var fyrir innsendar tillögur í ársbyrjun en sérstaklega skipuð dómnefnd ákvað tilnefningar og verðlaunahafa.
Myndlistarmaður ársins
Hrafnkell Sigurðsson hlaut titilinn Myndlistarmaður ársins fyrir sýninguna Upplausn í Auglýsingahléi Billboard 2022. Aðrir tilnefndir í þeim flokki voru Finnbogi Pétursson fyrir sýninguna Flói, Ingibjörg Sigurjónsdóttir fyrir sýninguna De rien og Rósa Gísladóttir fyrir sýningarnar Loftskurður og Safn Rósu Gísladóttur.

Opnuðu nýja leið til að miðla myndlist
„Árið 2022 sáu allir Reykvíkingar þegar óræðar hreyfimyndir birtust á 450 skjáum úti um alla borg, í strætóskýlum og á stórum auglýsingaskiltum. Á skjáunum birtust síbreytilegar þokur sem mynduðu stundum form og mynstur sem leystust þó jafnóðum upp aftur.
Þetta var ekki bilun heldur verkið Upplausn eftir Hrafnkel Sigurðsson, unnið upp úr stórum, samsettum ljósmyndaverkum frá 2018 þar sem ótal örsmáir fletir raðast saman í þokukennda mósaíkmynd.
Það er mat dómnefndar að með því að nýta auglýsingaskiltin hafa Hrafnkell og fleiri opnað nýja leið til að miðla myndlist en Hrafnkell sýni líka að skiltin eru ekki bara eins og fletir til að fylla út í, heldur er hægt að nýta þau sem miðil með öllu sem tæknin býður upp á og koma skilaboðunum úr sýningarsalnum út í hversdagslegan veruleika okkar þar sem við þurfum mest á þeim að halda,“ segir meðal annars í umsögn frá dómnefnd.

Hvatningarverðlaunin
Ásgerður Birna Björnsdóttir hlaut síðan Hvatningarverðlaunin fyrir sýninguna Snertitaug í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi. Aðrir tilnefndir í þeim flokki voru Elísabet Birta Sveinsdóttir fyrir sýninguna Mythbust og Egill Logi Jónasson fyrir sýninguna Þitt besta er ekki nóg.

Áhrifamikil sýning
„Myndlistarkonan Ásgerður Birna Björnsdóttir (f. 1990) hefur þegar markað sér sérstöðu meðal ungra listamanna með því að varpa fram áleitnum vangaveltum um framtíðina og takast á við þær spurningar sem eru hvað mest knýjandi í samtímanum og varða samspil manns og náttúru.
Sýning hennar Snertitaug vakti verðskuldaða athygli. Að mati dómnefndar var sýningin áhrifamikil og virkni tækjanna og starfsemi lífveranna, sem á sér stað að stórum hluta handan beinnar skynjunar mannsins, beindi sjónum að grunneigindum lífs og vaxtar á jörðinni og oft á tíðum klunnalegra aðferða mannsins til þess að virkja þessa orku og stýra henni,“ segir í fréttatilkynningunni.

Fleiri viðurkenningar
Á verðlaunahátíðinni voru svo fjórar viðurkenningar veittar til viðbótar en þær eru:
Viðurkenning fyrir áhugaverðasta endurlitið: Listasafn Reykjavíkur fyrir sýninguna Erró: Sprengikraftur mynda, í sýningarstjórn Danielle Kvaran og Gunnars B. Kvaran.
Viðurkenning fyrir áhugaverðustu samsýninguna: Myndhöggvarafélagið í Reykjavík fyrir sýninguna Hjólið V: Allt í góðu, í sýningarstjórn Kristínar Dagmarar Jóhannesdóttur.
Viðurkenning fyrir útgefið efni: Æsa Sigurjónsdóttir & Snæbjörnsdóttir/Wilson fyrir bókina Óræð lönd.
Heiðursviðurkenning: Ragnheiður Jónsdóttir fyrir einstakt framlag til íslenskrar myndlistar.

Í umsögn myndlistarráðs um Ragnheiði Jónsdóttur kemur eftirfarandi fram:
„Ragnheiður Jónsdóttir hefur markað djúp spor í íslenska listasögu með áhrifaríkri beitingu tækni í teikningu, fyrst í grafíkverkum og síðar í sérlega stórbrotnum og áhrifaríkum teikningum. Ragnheiður fæddist árið 1933 í Reykjavík og ólst upp í Þykkvabænum. Hún var komin á fertugsaldur þegar hún byrjaði fyrst að láta að sér kveða á sviði myndlistar. Hún hélt sína fyrstu einkasýningu árið 1968 og hefur átt óslitinn feril síðan þá.
Svartlistin, grafíkin, var það listform sem Ragnheiður lagði helst stund á fyrstu árin á ferli sínum. Undir lok sjöunda áratugarins vaknaði áhugi á að efla aðferðir til listsköpunar sem ekki höfðu notið virðingar í sögulegu samhengi. Grafíkin var tjáningarmáti sem margir listamenn tileinkuðu sér á þessum tíma og varð áttundi áratugurinn blómatími íslenskrar svartlistar. Listakonur, eins og Ragnheiður, beittu sér sérstaklega á þessu sviði.
Ein skýring þess er að viðurkenndir miðlar, eins og málverk og höggmyndagerð, áttu sér langa sögu sem snerist að mestu um listsköpun karlmanna. Grafíklistin gaf því færi á tjáningu sem var að sumu leyti óháð þeirri hefð. Ragnheiður tileinkaði sér frá upphafi fjölbreyttar og vandaðar aðferðir við gerð grafíkverka og náði miklum árangri í að þróa tæknina á persónulegan hátt. Fyrir vikið varð hún leiðandi, jafnt innan lands sem utan, í eflingu og skilningi á svartlist sem miðli.
Það er vegna margháttaðs framlags Ragnheiðar til íslensks myndlistarvettvangs sem þessi verðlaun eru veitt.
Hún hefur hafið veg teikningar og svartlistar í íslenskri myndlist til vegs og virðingar. Margþættur og fjölbreyttur myndheimur svartlistarverka hennar er einstakur, hvernig hún byggir upp kvenlæga sýn og töfraraunsæi á grunni teikningar og prentlistar.
Á seinni árum hefur hún tekið teikninguna föstum tökum í stórbrotnum myndverkum þar sem náttúrusýnin er tjáð í reynd, í sterkri nánd og mikilvirkri áferðarteikningu. Það er á þessum fjölbreytta grunni sem myndlistarráð hefur ákveðið að heiðra Ragnheiði Jónsdóttur fyrir lífsstarf hennar í þágu íslenskrar myndlistar og menningar.“
Dómnefnd Íslensku myndlistarverðlaunanna 2023 skipa:
Ásdís Spanó, formaður dómnefndar (Myndlistarráð), Jón Proppé (fulltrúi safnstjóra íslenskra safna), Sigrún Hrólfsdóttir (Samband íslenskra myndlistarmanna), Halldór Björn Runólfsson (Listfræðafélag Íslands) og Unnar Örn (Listaháskóli Íslands).
Myndlistaráð ákvarðar hverjir hljóta heiðursviðurkenning, samsýning ársins, endurlit ársins og viðurkenning á útgefnu efni. Myndlistarráð skipa:
Ásdís Mercedes Spanó formaður, skipuð án tilnefningar, Anna Jóhannsdóttir varaformaður, tilnefnd af Listasafni Íslands, Margrét Elísabet Ólafsdóttir, tilnefnd af Listfræðafélagi Íslands, Hlynur Helgason, tilnefndur af Sambandi íslenskra myndlistarmanna og Katrín Elvarsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra myndlistarmanna.