Barcelona vann nauman 0-1 sigur er liðið heimsótti Roma í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu kvenna í knattspyrnu í kvöld.
Rómverjar hafa komið skemmtilega á óvart í Meistaradeildinni í vetur og liðið er komið lengra en nokkru sinni fyrr. Liðið náði þó ekki að leggja stjörnuprýtt lið Barcelona í kvöld, en fær annað tækifæri eftir rúma viku, þá á heimavelli Börsunga.
Salma Paralluelo skoraði eina mark leiksins á 34. mínútu eftir stoðsendingu frá Patricia Guijarro og niðurstaðan varð því 0-1 sigur Barcelona.
Leikurinn var í beinni útsendingu á Youtube-rás DAZN, en hægt er að horfa á leikinn aftur í spilaranum hér fyrir neðan.