Setti Íslandsmet í 5000 metra hlaupi þremur tímum eftir að hafa unnið Íslandsmeistaratitil í skíðagöngu Smári Jökull Jónsson skrifar 26. mars 2023 11:44 Andrea Kolbeinsdóttir bætti í gær 29 ára gamalt Íslandsmet í 5000 metra hlaupi innanhúss. Vísir/Hulda Margrét Andrea Kolbeinsdóttir bætti í gær 29 ára gamalt Íslandsmet í 5000 metra hlaupi innanhúss. Fyrr um daginn hafði hún unnið Íslandsmeistaratitil í 5 kílómetra skíðagöngu.
Íslandsmetið setti Andrea á Góumóti Gaflarans í Kaplakrika í gær. Hún kom í mark á tímanum 16:46,18 og stórbætti hún met Fríðu Rúnar Þórðardóttur frá árinu 1994. Það sem gerir afrek Andreu enn merkilegra er að fyrr um daginn keppti hún á Skíðamóti Íslands í skíðagöngu. Þar vann hún Íslandsmeistaratitil í 5 kílómetra göngu þegar hún kom fyrst í mark á tímanum 16:45,2 mínútur. Ótrúlegur dagur hjá Andreu sem sigraði í Reykjavíkurmaraþoninu og Laugavegshlaupinu síðasta sumar. Þá fór fram um helgina mótið Raleig Relays í Norður-Karólínu en þar var Baldvin Þór Magnússon á meðal keppenda. Hann bætti eigið Íslandsmet í 1500 metra hlaupi þegar hann kom í mark á tímanum 3:40,36 en hann átti sjálfur fyrra metið sem hann setti árið 2021. Baldvin Þór bætti einnig eigin árangur í 10.000 metra hlaupi þegar hann hljóp á tímanum 28:57,17 en Íslandsmet Hlyns Andréssonar í greininni er 28:36,80 frá árinu 2021.
Frjálsar íþróttir Skíðaíþróttir Mest lesið Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Körfubolti Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Fleiri fréttir Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Dagskráin: Meistaradeildin og Körfuboltakvöld kvenna „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Sjá meira