Syðri Brú að verða uppseld Karl Lúðvíksson skrifar 30. mars 2023 10:11 Syðri Brú í Soginu Mynd af www.agn.is Það eru ekki mörg veiðisvæði þar sem aðeins ein stöng er leyfð, gott hús fylgir með og veiðivonin góð allt tímabilið.
Eitt af þessum svæðum er Syðri Brú í Soginu en þeir sem þekkja Sogið og veitt á Bíldsfellssvæðinu vita hvaða veiðistaður Landaklöpp er. Þegar veiðistaðurinn Útfall er veiddur í Bíldsfelli er oftar en ekki einhver að veiða austurbakkann og það er hinn margfrægi veiðistaður Landaklöpp sem tilheyrir Syðri Brú. Þarna er nokkuð undantekningalaust alltaf kom lax strax í byrjun en vel þekkt að fyrstu laxarnir sem mæta í árnar eru ansi snöggir uppá efsta veiðistað. Það er mikil ásókn og fer vaxandi þar sem veiðimenn geta séð um sig sjálfir í húsi og veitt á svæði með góða veiðivon fyrir sanngjarnt verð en því miður fer þeim svæðum fækkandi. Veiðikló ehf leigutaki Syðri Brúar er líka með Gíslastaðasvæðið í Hvítá en þar er löngu uppselt og færri komust að en vildu. Það má benda þeim veiðimönnum sem hafa áhuga að Syðri Brú að aðeins voru tólf dagar lausir þegar að var gáð í gær en þarna eru seldir tveir dagar saman þar sem veiðist bæði lax og bleikja. Þó svo að Landaklöpp sé þekktastur af þeim veiðistöðum sem eru á svæðinu er fleiri staðir fyrir neðan en það fara bara fáir í þá því veiðin á klöppinni er yfirleitt svo góð.
Stangveiði Mest lesið Fyrsti laxinn kom í Norðurá Veiði Fengu 28 urriða á rúmlega tveimur tímum í Veiðivötnum Veiði Hljótum að geta sett í einn eða tvo Veiði 55 fiskar á land á einum degi Veiði Hnýttu tungsten Nobbler fyrir sumarið! Veiði Síðsumarsflugan sem má ekki gleymast Veiði Næst besta opnun sumarsins er í Stóru Laxá IV Veiði Tóti Tönn og félagar ekki í Blönduopnun Veiði Einföld og öflug straumfluga Veiði Fjórtán punda urriði í Galtalæk Veiði