Fundu ekki Haaland á æfingu Man City fyrir Liverpool leikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. mars 2023 14:30 Pep Guardiola gæti verið án Erling Haaland í stórleiknum á móti Liverpool. Getty/Alex Livesey Norski framherjinn Erling Haaland er tæpur fyrir stórleikinn á móti Liverpool í hádeginu á morgun.
Enskir fjölmiðlar fengu að mæta á upphaf æfingu liðsins í gær og vöktu þá athygli á því að Haaland var þar hvergi sjáanlegur. Haaland meiddist á nára í leik á móti Bournemouth fyrir landsleikjahléið og gat ekki tekið þátt í landsleikjum Norðmanna sem voru gríðarleg vonbrigði fyrir norska landsliðið. Haaland er sagður hafa farið til Barcelona í meðferð en lítið hefur verið staðfest um stöðu mála hjá honum. Fjarvera hans á æfingunni í gær ýtir undir þær áhyggjur stuðningsmanna Manchester City að langmarkahæsti leikmaður liðsins og ensku úrvalsdeildarinnar missi af þessum mikilvæga leik á móti Liverpool. Haaland hefur skorað 42 mörk í 37 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu þar af 28 mörk í 26 leikjum í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur spilað þrisvar á móti Liverpool á leiktíðinni, skoraði ekki í fyrstu tveimur en var meðal markaskorara í 3-2 sigri á Liverpool í enska deildabikarnum í desember. Erling Haaland is absent from Manchester City training ahead of their match against Liverpool pic.twitter.com/vMXmjJOhy8— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) March 30, 2023
Enski boltinn Mest lesið Sigursteinn barðist við tárin Handbolti „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Sport Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Handbolti Carlsen í neðsta sæti í Noregi Sport Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Handbolti Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Íslenski boltinn Emil Barja tekur við Stjörnunni Körfubolti Vilja ráða Iraola eða Lampard Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Sjá meira